Þýska stórliðið Füchse Berlin ætlar sér stóra hluti á félagaskiptamarkaðnum á næstu misserum. Bob Hanning, framkvæmdastjóri félagsins, hefur greint frá því að félagið stefni að því að bæta við þremur leikmönnum í heimsklassa fyrir næsta tímabil, þrátt fyrir að þegar hafi verið gengið frá félagaskiptum Simon Pytlick og Dika Mem til félagsins. Danska stórstjarnan Mathias Gidsel er fyrir hjá félaginu en næsta sumar bætast þeir Simon Pytlick og Dika Mem í hópinn. Pytlick kemur frá Flensburg á meðan Mem yfirgefur spænska stórliðið Barcelona. Báðir hafa skrifað undir samninga sem taka gildi sumarið 2027. Hanning segir hins vegar að uppbyggingu liðsins sé hvergi nærri lokið. Í hlaðvarpinu Behind the Athletes greindi hann frá því að félagið stefni að því að fá þrjá heimsklassaleikmenn til viðbótar. „Við ætlum að fullkomna þetta á næsta ári með því að fá þrjá leikmenn til viðbótar í algjörum heimsklassa, í stöður þar sem við erum þegar með heimsklassaleikmenn,“ sagði Hanning. Hann lagði jafnframt áherslu á að félagið ætlaði ekki að hverfa frá þeirri stefnu að byggja á eigin uppöldum leikmönnum. „Á sama tíma ætlum við að vera með sjö eða átta leikmenn úr okkar eigin unglingastarfi í hópnum. Það er hvergi annars staðar að finna.“ Hanning nefndi ekki hvaða leikmenn félagið hefði augastað á og því liggur ekkert fyrir um hverjir gætu bæst við leikmannahópinn. Füchse Berlin er þegar með eitt sterkasta lið Evrópu en metnaður félagsins virðist engan veginn hafa náð hámarki. Gangi áformin eftir gæti Berlínarliðið teflt fram einu allra sterkasta félagsliði handboltasögunnar á næstu árum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.