FH og Víkingur mættust í dag í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Kaplakrika. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi. Mikið jafnræði en Víkings stelpur voru einu skrefi á undan. Hálfleikstölur voru 10-11 fyrir Víking. Í seinni hálfleik náðu FH stelpur fljótt góðum tökum á leiknum og voru komnar í 20-14 eftir rúmt korter í seinni hálfleik. Eftir það náðu Víkings stelpur aldrei að ógna FH liðinu að neinu ráði og öruggur heimasigur FH varð raunin. Lokatölur urðu 27-23. Hjá FH var Sylvía Blöndal stórkostleg og setti 15 mörk. Sonja Szöke var frábær að auki og varði 18 skot. Hjá Víking var Ólöf Ásta Arnþórsdóttir markahæst með 9 mörk. Þórdís Idda Ólafsdóttir varði 11 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.