Það vakti töluverða athygli á síðasta ári þegar Kristinn Albertsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, rifjaði upp gamla sögu þess efnis að handbolti hefði á sínum tíma verið í kringum 186. sæti á lista yfir vinsælustu íþróttagreinar heims, sæti á eftir hinu svokallaða indverska rottuhlaupi. Nýlegar alþjóðlegar mælingar draga upp töluvert aðra mynd. Í samantekt Global Statistics sem birt var á dögunum yfir vinsælustu íþróttagreinar heims árið 2026 er handboltinn í 17. sæti, með áætlaðan fylgjendahóp upp á um 270 milljónir manna. Handboltinn er þar á svipuðum slóðum og hjólreiðar, sund og fleiri stórar alþjóðlegar íþróttagreinar og kemst samkvæmt listanum inn á meðal tuttugu vinsælustu íþróttagreina heims. Slíkar vinsældamælingar eru þó ekki algildar. Mismunandi listar leggja mismikið vægi á fjölda stuðningsmanna, sjónvarpsáhorf, iðkendafjölda og landfræðilega útbreiðslu. Önnur og fræðilegri mæling setur handboltann enn ofar. Í ritrýndri rannsókn sem birt var í vísindatímaritinu Frontiers in Sports and Active Living árið 2025 voru 40 ólympískar íþróttagreinar bornar saman út frá tveimur þáttum: alþjóðlegri útbreiðslu og vinsældum í fjölmiðlum. Þar lenti handboltinn í 12. sæti. Knattspyrna var efst, þá körfubolti og tennis. Handboltinn kom í kjölfar hjólreiða og var meðal annars ofar en borðtennis, júdó, badminton, glíma, lyftingar og fimleikar. Samkvæmt þeirri aðferðafræði fékk handboltinn samsettan stuðul upp á 30 stig. Til samanburðar var borðtennis með 27 stig, júdó 25 og badminton 24,9. Enginn einn sannleikur um vinsældir Það er erfitt að tiltaka með fullri vissu hvaða íþrótt sé sú 12., 17. eða 20. vinsælasta í heimi. Knattspyrna er nánast alls staðar í sérflokki en eftir það getur röð íþróttagreina breyst verulega eftir því hvað er mælt. Krikket nýtur til dæmis gríðarlegra vinsælda á Indlandi og öðrum fjölmennum ríkjum, á meðan sterkasta bakland handboltans er einkum að finna í Evrópu. Nýlegar mælingar eiga þó eitt sameiginlegt, þ.e. að þær staðsetja handboltann mun nær topp 20 en 200. sæti. Global Statistics setur hann í 17. sæti en ritrýnda WRCES-mælingin í 12. sæti. Sagan um að handboltinn hafi einhvern tímann verið í 186. sæti, rétt á eftir hinu margfræga „indverska rottuhlaupi“, er því einungis marklaus flökkusaga frekar en raunhæf lýsing á stöðu handboltans í heiminum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.