Aldís Ásta sneri aftur með sigri eftir barnsburð
KA

Aldís Ásta Heimisdóttir og Katrín Vilhjálmsdóttir léku báðar sinn fyrsta leik með KA/Þór á tímabilinu þegar liðið vann Stjörnuna, 32–28, í 6. umferð Olís-deildar kvenna í KA-heimilinu um helgina.

Þetta var fyrsti sigur KA/Þórs á tímabilinu en liðið hafði tapað fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni.

Aldís Ásta gekk til liðs við KA/Þór fyrir tímabilið eftir þrjú ár með Skara í Svíþjóð, þar sem hún varð meðal annars sænskur meistari. Hún lét strax að sér kveða í sínum fyrsta leik og skoraði tvö mörk auk þess að gefa fjórar stoðsendingar.

Katrín lék sömuleiðis sinn fyrsta leik á tímabilinu og fékk því, líkt og Aldís Ásta, sigur í sínu fyrsta verkefni með liðinu í vetur.

Með sigrinum komst KA/Þór í tvö stig og stendur jafnfætis Stjörnunni og HK að loknum sex leikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top