Gidsel vill breytingar á félagaskiptareglunum
Frank Hoermann /AFP

Danska stórstjarnan Mathias Gidsel, leikmaður Füchse Berlin og þrívegis besti handboltamaður heims, telur tímabært að endurskoða félagaskiptareglur í handbolta. Gidsel vill að tekinn verði upp sérstakur félagaskiptagluggi, líkt og þekkist í knattspyrnu, í stað þess að leikmenn semji við ný félög mörgum árum áður en félagaskiptin eiga sér stað.

Gidsel ræddi málið í viðtali við þýska miðilinn Sport Bild en mikil umræða hefur skapast um félagaskiptareglur handboltans í kjölfar máls þýska landsliðsfyrirliðans Johannes Golla.

Golla gekk til liðs við Melsungen frá Flensburg síðasta sumar en vill nú snúa aftur til síns gamla félags eftir aðeins nokkra mánuði. Hann hefur meðal annars vísað til fjölskylduaðstæðna og andlegrar líðanar í tengslum við ósk sína um að yfirgefa Melsungen.

Félagaskipti Golla til Melsungen voru tilkynnt í desember 2024, um einu og hálfu ári áður en hann gekk til liðs við félagið.

„Við þurfum þennan félagaskiptaglugga. Mér finnst svolítið vandræðalegt að við séum að gera samninga þrjú eða fjögur ár fram í tímann. Eins og við sjáum núna með Johannes Golla getur margt breyst í lífinu, líka hvað varðar fjölskylduna. Þess vegna þurfum við að ræða hvernig við getum gert þetta betur í framtíðinni,“ sagði Gidsel við Sport Bild.

Gidsel lagði jafnframt áherslu á að ekki mætti gleyma mannlega þættinum þegar rætt væri um félagaskipti atvinnuíþróttamanna.

„Við erum manneskjur. Því má aldrei gleyma. Fjölskyldan mín og ég sem manneskja komum fyrst. Handboltinn er aðeins í öðru sæti,“ sagði Daninn.

Gidsel telur að félagaskipti og fjármunir sem þeim fylgja séu mikilvægur hluti atvinnuhandboltans en að skýrari reglur þurfi að gilda um þau.

„Félagaskipti eru góð fyrir handboltann og peningar koma inn í íþróttina. En við þurfum líka kerfi til að halda utan um þetta,“ sagði Gidsel. Hann er ekki sá eini sem hefur gagnrýnt núverandi fyrirkomulag. Stefan Kretzschmar, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands, hefur meðal annars lýst þróuninni sem skelfilegri.

Það hefur færst í aukana að stórlið Evrópu tilkynni um félagaskipti langt fram í tímann. Þýska stórliðið Magdeburg tilkynnti til að mynda í ágúst að Frakkinn Thibaud Briet myndi ganga til liðs við félagið sumarið 2028.

Málið hefur einnig verið rætt innan þýsku Bundesligunnar. Samkvæmt þýsku fréttastofunni dpa vilja forráðamenn deildarinnar þó ekki breyta reglunum einhliða heldur telja æskilegra að finna sameiginlega lausn fyrir evrópskan handbolta.

Gidsel vonast til þess að umræðan leiði til raunverulegra breytinga og að málið verði tekið fyrir á æðra stigi en eingöngu í fjölmiðlum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top