Þrír leikir áttu sér stað í gær er 9.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar var í fullum gangi. Fyrsti leikur dagsins fór fram er Flensburg tóku á móti Füchse Berlin. Heimamenn byrjuðu leikinn betur og komust í 2–0 áður en gestirnir náðu að jafna metin. Liðin skiptust á að skora á upphafsmínútunum en Flensburg náði fljótlega undirtökunum og komst í 15–11 þegar rúmar 19 mínútur voru liðnar af leiknum. Füchse Berlin svaraði hins vegar með frábærum kafla og skoraði sjö mörk í röð án þess að Flensburg næði að svara. Gestirnir sneru því stöðunni úr 15–11 í 15–18. Heimamenn náðu aðeins að minnka muninn fyrir hlé en staðan var 17–19 fyrir Füchse Berlin þegar liðin gengu til búningsherbergja.Síðari hálfleikur var jafn og spennandi. Flensburg náði að jafna metin í 21–21 og komst síðan yfir í 22–21. Eftir það skiptust liðin á að hafa forystuna en þegar um 43 mínútur voru liðnar var staðan 25–25. Flensburg náði þá góðum kafla og komst í 31–28 þegar tæpar 49 mínútur voru liðnar.Gestirnir neituðu þó að gefast upp og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Flensburg hélt lengi vel forystunni og var yfir 33–31 þegar rúmar fimm mínútur voru eftir. Füchse Berlin náði hins vegar að jafna metin í 33–33 þegar aðeins 15 sekúndur voru eftir af leiknum með marki Nils Lichtlein. Það var síðan Simon Pytlick sem tryggði Flensburg dramatískan sigur með marki beint úr aukakasti á lokasekúndu leiksins. Lokatölur urðu 34–33 fyrir Flensburg eftir æsispennandi lokamínútur þar sem heimamenn fögnuðu tveimur stigum. Atkvæðamesti leikmaður leiksins var Mathias Gidsel með 11 mörk og 2 stoðsendingar. Í öðrum leik dagsins Lemgo tók á móti Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta þar sem heimamenn höfðu betur í jöfnum og spennandi leik. Gestirnir byrjuðu betur og skoruðu fyrsta mark leiksins en Lemgo komst fljótlega inn í leikinn. Liðin skiptust á að skora á upphafsmínútunum og staðan var 3–3 eftir tæpar sjö mínútur. Lemgo náði í kjölfarið tveggja marka forystu og komst síðar í 8–5 þegar rúmar 12 mínútur voru liðnarGöppingen náði þó að vinna sig aftur inn í leikinn og jafnaði metin í 8–8. Heimamenn héldu áfram að hafa frumkvæðið og komust í 11–9 áður en gestirnir jöfnuðu aftur í 11–11. Lokamínútur fyrri hálfleiks voru jafnar en Lemgo náði að skapa sér tveggja marka forskot fyrir hlé. Staðan var 15–13 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Síðari hálfleikur hófst á svipuðum nótum og sá fyrri þar sem lítið skildi liðin að. Göppingen náði að jafna metin í 16–16 og aftur í 18–18 áður en gestirnir komust yfir í 18–19 þegar rúmar 41 mínútur voru liðnar. Lemgo svaraði hins vegar og jafnaði metin í 19–19. Eftir það skiptust liðin á að hafa forystuna og staðan var 21–21 þegar 12 mínútur voru eftir.Lemgo náði þá að komast í 23–21 en Göppingen neitaði að gefast upp og jafnaði metin í 23–23. Spennan hélt áfram og þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum var staðan 26–26 eftir mark frá Fabio Lastro. Á lokamínútunum reyndust heimamenn sterkari. Niels Versteijnen kom Lemgo yfir í 27–26 þegar 44 sekúndur voru eftir og Lukas Wanner innsiglaði síðan sigurinn með marki þegar aðeins sex sekúndur voru eftir. Lokatölur urðu 28–26 fyrir Lemgo, sem tryggði sér þar með tvö mikilvæg stig eftir hörkuleik. Atkvæðamesti leikmaður leiksins var Samuel Zehnder með 10 mörk. Þriðji og seinasti leikur dagsins fór fram er Magdeburg tók á móti Stuttgart. Magdeburg byrjaði leikinn betur og komst í 3–1 á fyrstu fimm mínútunum. Stuttgart náði þó að jafna metin í 3–3 en heimamenn tóku aftur frumkvæðið og komust í 9–6 þegar um 14 mínútur voru liðnar af leiknum.Magdeburg hélt áfram að auka forskot sitt og komst í 12–7 þegar um 20 mínútur voru liðnar. Heimamenn héldu góðum takti út fyrri hálfleikinn og náðu mest sex marka forystu. Staðan var 18–12 fyrir Magdeburg þegar liðin gengu til búningsherbergja.Stuttgart byrjaði síðari hálfleikinn af krafti og skoraði fyrstu þrjú mörkin eftir hlé. Gestirnir minnkuðu þannig muninn í 18–15 en Magdeburg svaraði og komst aftur í 21–18. Stuttgart hélt þó áfram að saxa á forskotið og þegar um 44 mínútur voru liðnar var staðan orðin 23–22. Magdeburg náði að halda gestunum frá sér og komst í 26–24 þegar rúmar tíu mínútur voru eftir. Stuttgart minnkaði muninn í eitt mark en Felix Claar skoraði tvö mörk í röð og kom heimamönnum í 28–25 þegar rúmar sjö mínútur voru eftir. Stuttgart neitaði hins vegar að gefast upp og skoraði þrjú mörk í röð á lokamínútunum. Gestirnir minnkuðu muninn í 29–28 þegar 30 sekúndur voru eftir en náðu ekki að jafna metin. Lokatölur urðu 29–28 fyrir Magdeburg, sem tryggði sér tvö stig eftir mikla spennu á lokamínútunum þrátt fyrir að hafa haft sex marka forskot í hálfleik. Úrslit dagsins: Flensburg-Füchse Berlin 34-33 Lemgo-Göppingen 28-26 Magdeburg-Stuttgart 29-28

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.