Það vakti athygli að Mariam Eradze, leikmaður Vals, var skráð sem markvörður á leikskýrslu þegar Valur vann Gróttu, 26–21, í 6. umferð Olís-deildar kvenna um helgina. Mariam hefur glímt við meiðsli og ekkert leikið með Valsliðinu á tímabilinu. Skráning hennar sem markvarðar átti sér þó sérstakar skýringar. Hafdís Renötudóttir sneri aftur í lið Vals eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum en hún gekk ekki alveg heil til skógar í aðdraganda leiksins. Ísabella Schöbel Björnsdóttir, sem gekk til liðs við Val á dögunum, var stödd erlendis og því ekki í leikmannahópnum. Þjálfarateymi Vals brást við stöðunni með því að hafa Mariam til taks á bekknum sem markvörð, auk Iðunnar Völu Kristbjörnsdóttur. Hafdís lék þó nær allan leikinn í marki Vals og átti stórkostlegan leik með um 50% markvörslu. Valur er í þriðja sæti deildarinnar með átta stig eftir sex leiki. Næsti leikur liðsins er gegn Stjörnunni í Heklu-höllinni föstudaginn 30. október.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.