Dagur þarf að vera kóngurinn til að ÍBV vinni leikina
Egill Bjarni Friðjónsson

Rætt var um mikilvægi Dags Arnarssonar fyrir ÍBV í nýjasta þætti Handkastsins þegar farið var yfir sex marka sigur Eyjamanna á Þór, 37–31, í 6. umferð Olís-deildar karla.

ÍBV er eftir sigurinn í sjötta sæti deildarinnar með sex stig.

„Ef ÍBV ætlar að eiga séns í leikjum þá þarf Dagur Arnarsson að vera on,“ sagði Stymmi klippari.

„Já, hann þarf að vera kóngurinn til að þeir vinni leiki,“ bætti Kristinn Björgúlfsson við.

Einnig var rætt um Gary Philips, hægri skyttu ÍBV, sem skoraði tvö mörk úr tveimur skotum gegn Þór. Kristinn telur Bandaríkjamanninn geta orðið öflugan leikmann.

„Hann getur orðið góður. Hann er óslípaður demantur. Ef þeim tekst að gera hann að einhverjum leikmanni þá eru þeir í góðum málum. Það hentar þeim ágætlega að hann sé Kani. Rhein-Neckar Löwen er ekkert að fara að horfa á einhvern Bandaríkjamann í Olís-deildinni. Þetta gæti alveg orðið eitthvað,“ sagði Kristinn.

ÍBV heimsækir Val á föstudaginn í næstu umferð. Síðar í þættinum var spáð í þá viðureign og voru Stymmi og Kristinn sammála um að Valur myndi fara með öruggan sigur af hólmi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top