Haukur Ingi Hauksson og Marel Baldvinsson leikmenn Fram voru markahæstir með sex mörk hvor í tapi liðsins gegn FH í 6.umferð Olís-deildar karla á laugardaginn. Rætt var um leikinn og frammistöðu Fram í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. ,,Haukur Ingi þurfti 17 skot til að skora þessi sex mörk síðan á meðan Marel þurfti átta skot. Þetta stakk þig í augun Stymmi," sagði Sérfræðingurinn þegar hann opnaði umræðuna á skottilraunum Hauks Inga. ,,Heilt yfir er þetta farið að vera svona, Ísak Logi Einarsson leikmaður Stjörnunnar skaut 22 skot í sigri Stjörnunnar gegn KA. Haukur Ingi með 17 skot þarna, ég er meira að klóra mér í hausnum á þróun handboltans í heild sinni eða bara í þessari deild. Eru menn ekki bara komnir með skotverk í öxlina?" ,,Þegar ég var að alast upp í boltanum og var að spila þá var óvanalegt ef menn skutu tíu sinnum í leik," bætti Stymmi við. Þess má til gamans geta að ísak Logi Einarsson hefur skotið 111 skotum samkvæmt HB Statz í fyrstu sex leikjum Stjörnunnar sem gerir 18,5 skot að meðaltali í leik. Næstur kemur Gunnar Róbertsson leikmaður Vals með 93 skot eða 15,5 skot að meðaltali í leik. Tölfræði Gunnars er hinsvegar ótrúleg því hann er með 82% skotnýtingu sem er með því hæsta í deildinni. 7.umferðin í Olís-deild karla hefst í kvöld þegar Fram tekur á móti Haukum klukkan 19:30.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.