Það var stórleikur á dagskrá í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld þegar Svíþjóðarmeistarar Kristianstad mættu í heimsókn til Sävehof í Partille Arena í Gautaborg í kvöld. Fyrir leik voru bæði lið ósigruð en Kristianstad var búið að vinna alla fjóra leiki sína á meðan heimamenn voru búnir að vinna báða leiki sína í deildinni hingað til en það var búist við hörkuleik. Það var jafnt í byrjun leiks og mikill hraði og mikið skorað en í stöðunni 9-9 tóku heimamenn völdin og keyrðu framúr gestunum, þeir leiddu með sex mörkum í hálfleik, 21-15. Gestirnir náðu að minnka muninn niður í fimm mörk en komust aldrei nær því Sävehof lék á alls oddi og gjörsamlega pökkuðu meisturunum saman og unnu að lokum gríðarlega óvæntan stórsigur, 39-28! Íslendingarnir í báðum liðum voru í stórum hlutverkum, Birgir Steinn Jónsson skoraði tvö mörk úr tveimur skotum, gaf þrjár stoðsendingar og fékk eina brottvísun fyrir heimamenn en fyrir gestina skoraði Einar Bragi Aðalsteinsson sex mörk úr ellefu skotum, gaf fimm stoðsendingar og fékk eina brottvísun, Baldur Fritz Bjarnason bætti við sex mörkum úr átta skotum þar af tvö mörk úr vítum og Andri Erlingsson skoraði eitt mark úr tveimur skotum og gaf eina stoðsendingu og að lokum var Ólafur Guðmundsson einnig í liði gestanna en hann lét lítið að sér kveða. Úrslit kvöldsins: Sävehof 39-28 Kristianstad

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.