Gagnrýna dómaraniðurröðunina – Græðgi myndu einhverjir segja
Eyjólfur Garðarsson

Ákvörðun dómaranefndar HSÍ um að láta þá Ómar Örn Jónsson og Ómar Inga Sverrisson dæma þrjá leiki í Vestmannaeyjum á innan við sólarhring um helgina var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Þar voru stjórnendur þáttarins undrandi á fyrirkomulaginu og veltu því fyrir sér hvort sparnaðarsjónarmið hefðu ráðið för.

Rætt var um málið undir liðnum, skita vikunnar sem er í boði Skolphreinsun Ásgeirs.

„Ég veit ekki alveg hvert við eigum að senda Skolphreinsun Ásgeirs, er þetta á dómaraniðurröðunarnefnd HSÍ eða hver sér um þetta?“ spurði Stymmi klippari.

„Við sendum þá á formann dómaranefndar, Reyni Stefánsson,“ greip Sérfræðingurinn inn í.

„Hann sendi Ómar og Ómar til Vestmannaeyja að dæma þrjá leiki á innan við sólarhring um helgina. Ákveðin sparnaðarákvörðun og örugglega verið að spara aurinn og erfiðar samgöngur milli lands og eyja,“ sagði Stymmi klippari.

Sérfræðingurinn velti því hins vegar fyrir sér hver væri í raun að hagnast á slíku fyrirkomulagi.

„Maður veltir fyrir sér, félögin borga dómarakostnaðinn, sparnaður fyrir hvern?“

Kristinn Björgúlfsson, gestur þáttarins, velti upp þeim möguleika að veðuraðstæður hefðu haft áhrif á ákvörðunina.

„Mögulega var þetta veðurfarsleg ákvörðun. Þeir voru þarna og áttu bara að klára alla leikina.“

„Það leið korter á milli leikja“

Dómaraparið dæmdi fyrst viðureign ÍBV og Þórs í Olís-deild karla á föstudagskvöldið. Í hádeginu á laugardaginn dæmdu þeir síðan leik ÍBV 2 og Þórs í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins áður en þeir flautuðu til leiks ÍBV og Fram í stórleik Olís-deildar kvenna klukkan 14:00 sama dag.

Aðeins fimmtán mínútur liðu frá lokum bikarleiksins þar til næsti leikur hófst samkvæmt umræðunni í Handkastinu.

„Græðgi myndu einhverjir segja. Það sem við erum að tala um er að það fóru þrír leikir fram um helgina. Á föstudaginn fór fram leikur ÍBV og Þórs í Olís-deild karla, í hádeginu á laugardaginn mættust ÍBV 2 og Þór í Powerade-bikarnum og klukkan 14:00 mættust ÍBV og Fram í stórleik í Olís-deild kvenna.“

Sérfræðingurinn sagðist sérstaklega undrandi á því að sama dómarapar hefði einnig verið sett á stórleikinn í kvennadeildinni.

„Það leið korter á milli leikja á laugardaginn. Framarnir eru brjálaðir sem ég skil alveg en síðan hafa aðrir rætt þetta og ég hugsaði þetta þegar ég sá þá dæma þriðja leikinn í Eyjum, ég trúði ekki að þeir væru líka að fara dæma kvennaleikinn,“ sagði Sérfræðingurinn.

Nánar var farið yfir málið í lok nýjasta uppgjörsþáttar Handkastsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top