Elvar í liði umferðarinnar í Danmörku
Ribe Esbjerg

Elvar Ásgeirsson, leikmaður Ribe-Esbjerg, var valinn í lið 10. umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta af Tophåndbold.

Elvar fór á kostum í liði Ribe Esbjerg og skoraði sjö mörk og gaf fjórar stoðsendingar gegn Skanderborg AGF. Ribe tapaði hinsvegar leiknum 29-32.

Í umfjöllun Tophåndbold er Elvari hrósað fyrir mikilvægt hlutverk í góðri byrjun Ribe-Esbjerg á tímabilinu. Hann hafi lengi verið þungamiðjan í leik liðsins og eigi stóran þátt í árangrinum.

Ribe-Esbjerg er með 15 stig eftir tíu umferðir, líkt og Álaborg í 2.sæti deildarinnar en GOG trónir á toppnum með 19 stig.

Lið 10. umferðar:

  • Markvörður: Emil Kheri Imsgard, Nordsjælland Håndbold.
  • Vinstra horn: Morten Jørgensen, Fredericia HK.
  • Vinstri skytta: Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg HH.
  • Leikstjórnandi: Óli Mittun, GOG.
  • Hægri skytta: Nikolaj Larsson, Nordsjælland Håndbold.
  • Hægra horn: Patrick Wiesmach, Álaborg.
  • Línumaður: Anders Zachariassen, Bjerringbro-Silkeborg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top