Grótta áfram með fullt hús stiga eftir sigur í Kórnum
Eyjólfur Garðarsson)

Grótta heldur áfram sigurgöngu sinni í Grill 66-deild karla en liðið vann fjögurra marka útisigur á HK 2, 34-30, í sjöundu umferð deildarinnar í dag. Gróttumenn hafa þar með unnið alla sjö leiki sína á tímabilinu og eru komnir á topp deildarinnar.

Gróttumenn byrjuðu leikinn betur og komust snemma í 7-3. Heimamenn í HK 2 náðu þó að halda í við gestina og minnkuðu muninn niður í eitt mark undir lok fyrri hálfleiks. Grótta átti hins vegar lokaorðið fyrir hlé og leiddi með tveimur mörkum, 16-14, þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Í síðari hálfleik náðu Gróttumenn góðum kafla og breyttu stöðunni úr 16-14 í 23-16. Sjö marka forskot gestanna reyndist heimamönnum erfitt að vinna upp en HK 2 tókst þó að minnka muninn niður í þrjú mörk undir lok leiks.

Gróttumenn héldu hins vegar út og fögnuðu að lokum fjögurra marka sigri, 34-30.

Sæþór Atlason og Sigurður Finnbogi Sæmundsson voru markahæstir í liði Gróttu með átta mörk hvor. Kári Kvaran skoraði sjö mörk og Gísli Örn Alfreðsson bætti við fimm mörkum.

Hjá HK 2 var Bjarki Freyr Sindrason markahæstur með sjö mörk en Elmar Franz Ólafsson og Viktor Bjarki Einarsson skoruðu sex mörk hvor.

Grótta er nú á toppi Grill 66-deildarinnar með 14 stig eftir sjö leiki, líkt og ÍR sem hefur einnig unnið alla sína sjö leiki. Grótta stendur hins vegar betur að vígi í markatölu, með 85 mörk í plús gegn 74 hjá ÍR. HK 2 situr í sjötta sæti deildarinnar með sex stig eftir sjö leiki.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top