Tvö íslendingalið voru í eldlínunni á Spáni í gærkvöldi. Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6 skot í marki Barcelona þegar liðið vann 18 marka sigur á Cuenca í spænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi, 45-27. Þorgils Jón Svölu Baldursson spilaði einnig með liði sínu Caserio Ciudad Real þegar liðið mátti þola fjögurra marka tap gegn Bidasoa Irun á útivelli, 36-32. Þorgils Jón skoraði tvö mörk í leiknum. Barcelona eru ennþá taplausir í deildinni eftir 6 umferðir en Caseiro eru í 7.sæti deildinnar þrátt fyrir að hafa tapað tveim leikjum í röð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.