Dujshebaev hefur valið franska landsliðshópinn
Andreas Gora / AFP

Talant Dujshebaev, landsliðsþjálfari Frakklands í handbolta, hefur valið 19 manna landsliðshóp fyrir komandi leiki í undankeppni Evrópumótsins 2028. Athygli vekur að hinn reynslumikli markvörður Rémi Desbonnet er enn á ný utan hópsins.

Desbonnet, sem leikur með Montpellier, hefur átt undir högg að sækja í landsliðsvalinu frá því Dujshebaev tók við franska landsliðinu fyrr á árinu.

Í stað Desbonnet hefur Dujshebaev ákveðið að treysta á Valentin Kieffer, sem hefur farið vel af stað með Limoges á tímabilinu, og Romain Mathias, sem hefur fengið sín fyrstu tækifæri með franska landsliðinu á þessu ári. Charles Bolzinger er einnig í markvarðahópnum.

Vinstri hornamaðurinn Hugo Descat snýr aftur í franska landsliðið eftir nokkra fjarveru. Descat, sem er 34 ára gamall og leikur með ungverska stórliðinu Veszprém, hefur verið í góðu formi á tímabilinu og virðist hafa sannfært Dujshebaev um að hann eigi erindi í landsliðið á ný.

Þá vekur einnig athygli að Aymeric Zaepfel, leikmaður Füchse Berlin, er ekki í hópnum en hann tók þátt í síðasta Evrópumóti með Frökkum.

Frakkar hefja undankeppni EM 2028 með heimaleik gegn Rúmeníu 5. nóvember áður en liðið sækir Letta heim þremur dögum síðar.

19 manna landsliðshópur Frakklands

Markverðir:

Charles Bolzinger – Montpellier 
Valentin Kieffer – Limoges 
Romain Mathias – Sélestat

Vinstri hornamenn:

Hugo Descat – Veszprém 
Dylan Nahi – Kielce

Vinstri skyttur:

Thibaud Briet – Nantes 
Élohim Prandi – PSG

Leikstjórnendur:

Eliott Desblancs – PAUC 
Aymeric Minne – Flensburg 
Nedim Remili – Veszprém

Línumenn:

Ludovic Fabregas – Barcelona (fyrirliði) 
Karl Konan – PSG 
Théo Monar – Kielce 
Nicolas Tournat – Nantes

Hægri skyttur:

Julien Bos – Kielce 
Dika Mem – Barcelona 
Melvyn Richardson – Wisła Płock

Hægri hornamenn:

Benoît Kounkoud – Kielce 
Yanis Lenne – Veszprém

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top