Víkingur vann átta marka útisigur á Fram, 36-28, í Olís-deild karla í dag. Framarar leiddu 17-16 í hálfleik og voru yfir 25-24 í síðari hálfleik en Víkingar tóku þá öll völd á vellinum. Jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleik en Víkingar náðu þriggja marka forskoti, 11-8 og 12-9. Framarar svöruðu hins vegar vel, jöfnuðu í 12-12 og komust síðan í 15-13. Heimamenn voru að lokum marki yfir þegar flautað var til hálfleiks, 17-16. Fram skoraði fyrsta mark síðari hálfleiks og náði síðar þriggja marka forystu, 22-19. Víkingar unnu forskotið upp og jöfnuðu í 24-24 áður en Framarar komust yfir í síðasta sinn, 25-24. Þá snerist leikurinn heldur betur gestunum í vil. Víkingar skoruðu fimm mörk í röð og breyttu stöðunni í 29-25. Eftir að Fram minnkaði muninn í 30-27 skoruðu Víkingar önnur fimm mörk án svars og gerðu endanlega út um leikinn. Þeir unnu því síðasta hluta leiksins 12-3 og fögnuðu sannfærandi sigri. Jón Karl Einarsson var markahæstur Víkinga með átta mörk en Elvar Orri Hjálmarsson og Kristján Helgi Tómassonskoruðu fimm mörk hvor. Rökkvi Pacheco Steinunnarson varði tíu skot og Daði Bergmann Gunnarsson tvö. Hjá Fram var Haukur Ingi Hauksson markahæstur með sjö mörk og Marel Baldvinsson skoraði fimm. Stefán Freyr Jónsson varði fimm skot en Arnór Máni Daðason og Jóhann Ágústsson eitt hvor.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.