FH vann sjö marka útisigur á Þór, 37-30, í 9.umferð Olís-deildar karla í dag. FH fer með sigrinum upp í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig en Þór er áfram í áttunda sæti með sex stig. FH-ingar byrjuðu af miklum krafti og komust í 7-2 og síðar 11-3. Gestirnir náðu mest átta marka forskoti í fyrri hálfleik en Þórsarar unnu sig aftur inn í leikinn og minnkuðu muninn í 15-13. FH skoraði hins vegar tvö síðustu mörk hálfleiksins og leiddi 17-13 í leikhléi. Þórsarar héldu áfram að veita gestunum mótspyrnu eftir hlé. FH komst í 20-14 en heimamenn neituðu að gefast upp og náðu að minnka muninn í eitt mark, 25-24. Þá svöruðu FH-ingar með tveimur mörkum í röð og náðu aftur betri tökum á leiknum. Þeir sigu fram úr á lokakaflanum og unnu að lokum sjö marka sigur, 37-30. Einar Rafn Eiðsson og Ómar Darri Sigurgeirsson voru markahæstir FH-inga með sex mörk hvor og Gunnar Kári Bragason skoraði fimm. Jón Þórarinn Þorsteinsson varði 19 skot í marki FH og Ólafur Rafn Gíslason eitt. Hjá Þór var Bertram Simonsen markahæstur með átta mörk og Hafþór Már Vignisson skoraði sjö. Nikola Radovanovic varði 15 skot.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.