Stórkostleg frammistaða Björgvins Páls Gústavssonar, markvarðar Vals, í sigri liðsins gegn ÍBV í 7. umferð Olís-deildar karla var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Björgvin Páll fór á kostum í marki Vals og varði alls 26 skot í leiknum. Valur vann leikinn 36-28 og er í 4.sæti deildarinnar með 10 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Hauka. Stymmi klippari og Einar Ingi Hrafnsson voru sammála um að Björgvin Páll hefði átt stóran þátt í sigri Vals en Stymmi taldi að munurinn á liðunum hefði átt að vera mun meiri í hálfleik. „Þetta fór eins og ég bjóst við og Valur keyrði yfir Eyjamenn með Björgvin Pál í fantaformi í marki og var á tímabili með yfir 50% markvörslu,“ sagði Stymmi klippari og Einar Ingi tók undir þau orð. Einar Ingi var sérstaklega hrifinn af frammistöðu Björgvins Páls og benti á hversu óvenjulegt það væri að markvörður næði að verja svo mörg skot í einum leik. „Björgvin Páll var stórkostlegur með 26 varða bolta og við rýnum oft í gögnin hér í Handkastinu og það er gaman að skoða markvörslukortið á HB Statz, þar er nánast allt grænt. Þetta er hans langbesti leikur í Olís-deildinni í langan tíma. Ég minnist þess ekki að hafa séð 26 varða bolta síðan við hættum að telja varða bolta í fríkasti.“ Þrátt fyrir þessa frábæru frammistöðu Björgvins Páls taldi Stymmi að Valsmenn hefðu átt að gera enn betur í fyrri hálfleik og nýta yfirburði sína í markvörslunni. „Að Valur hafi ekki verið að vinna þennan leik með tíu mörkum með Bjögga í þessum ham, það var gígantískur munur á markvörslu liðanna í fyrri hálfleik. Valur hefði átt að vera tíu mörkum yfir í hálfleik,“ bætti Stymmi klippari við. Frammistaða Björgvins Páls var því eitt helsta umræðuefnið í uppgjörsþætti Handkastsins eftir 7. umferð Olís-deildar karla en markvörðurinn reyndi varla að fela hversu mikilvægur hann er Valsliðinu þegar hann nær sér á strik. Valur fer í Garðabæinn í 8.umferð Olís-deildarinnar í kvöld og mætir þar Stjörnunni klukkan 19:15. ÍBV mætir nýliðum Víkings í lokaleik umferðarinnar á fimmtudagskvöldið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.