Vandræðin halda áfram hjá Rúnari Sigtryggs
Florian Wiegand

Rúnar Sigtryggsson, þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Wetzlar, hefur þurft að glíma við mikil vandræði með leikmannahóp sinn að undanförnu og ekki batnaði staðan fyrir viðureign liðsins gegn Füchse Berlin á sunnudag.

Danski leikmaðurinn Nikolaj Læsø þurfti að draga sig úr leikmannahóp Wetzlar með skömmum fyrirvara vegna neyðarástands í einkalífi sínu. Wetzlar hafði þegar misst nokkra leikmenn vegna meiðsla og veikinda og því kom fjarvera Læsø sér afar illa fyrir íslenska þjálfarann.

Fyrir voru þeir Jona Schoch og Doruk Pehlivan frá vegna meiðsla og Niklas Theiß vegna veikinda.

Samkvæmt umfjöllun þýskra og danskra fjölmiðla hafði Rúnar því aðeins þrjá af sínum hefðbundnu leikmönnum í skyttustöðunum tiltæka gegn ríkjandi Þýskalandsmeisturum Füchse Berlin. Þrátt fyrir erfiða stöðu tókst Wetzlar að veita Berlínarliðinu ágæta mótspyrnu en Füchse Berlin vann að lokum 36-30.

Wetzlar hefur átt erfitt uppdráttar í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og hefur tapað átta af fyrstu tíu leikjum sínum, liðið hefur ekki enn unnið leik en Wetzlar hefur náð í tvö jafntefli. Liðið situr á botni deildarinnar og ljóst að verkefnið fram undan er ærið fyrir Rúnar og lærisveina hans.

Rúnar og lærisveinar hans fá MT Melsungen í heimsókn næstkomandi sunnudag en í kjölfarið tekur við landsliðspása.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top