Úlfar Páll Monsi Þórðarson fagnaði sigri með Alkaloid í norðurmakedónsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi á meðan Sveinn Jóhannsson var fjarri góðu gamni þegar Chambéry féll úr leik í frönsku bikarkeppninni. Úlfar Páll Monsi Þórðarson og félagar í Alkaloid unnu fimm marka útisigur á Butel Skopje, 29-24, í norðurmakedónsku úrvalsdeildinni í kvöld. Monsi skoraði tvö mörk úr sex skotum í leiknum en Alkaloid var þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-12, og sigldi sigrinum heim í síðari hálfleik. Alkaloid hefur farið vel af stað í deildinni á tímabilinu og er í þriðja sæti með 14 stig eftir átta leiki. Liðið hefur unnið sjö leiki og tapað einum. Sveinn Jóhannsson og félagar í Chambéry eru úr leik í frönsku bikarkeppninni eftir þriggja marka tap gegn Toulouse á útivelli í kvöld, 41-38. Sveinn var ekki í leikmannahópi Chambéry í leiknum en norski leikmaðurinn Simen Holand Pettersen var markahæstur gestanna með tíu mörk. Chambéry hefur átt erfitt uppdráttar í frönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og situr í 13. sæti deildarinnar með sex stig eftir átta umferðir. Liðið hefur unnið tvo leiki, gert tvö jafntefli og tapað fjórum. Toppliðið í frönsku 2.deildinni, Pau Billere sló Limoges óvænt úr bikarnum með sigri á heimavelli 37-35, Chartres vann Valence og Cesson Rennes sló út Tremlay eftir eins marks útisigur 32-31.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.