Hrannar Guðmundsson, þjálfari Aftureldingar, var ánægður með frammistöðu sinna manna í sigrinum gegn Þór í gær. Hann hrósaði sérstaklega heimamönnum sem stigu upp þegar á þurfti að halda en Afturelding var án bæði Hákons Daða Styrmissonar og Harra Halldórssonar vegna meiðsla sem þeir hlutu í tapinu gegn KA í síðustu umferð. Afturelding vann fjögurra marka sigur, 38-34 gegn Þór í gær, í fyrsta leik 8.umferðar deildarinnar. Afturelding er 3.sæti deildarinnar með 11 stig. „Þetta var flottur sigur í gær. Við vorum mjög flottir, sérstaklega í fyrri hálfleik, og við hefðum þess vegna átt að fara með stærra forskot inn í hálfleikinn,“ sagði Hrannar í samtali við Handkastið. Þórsarar náðu að vinna sig inn í leikinn á ný í upphafi síðari hálfleiks en Hrannar var ánægður með viðbrögð sinna manna. „Við byrjum hins vegar mjög illa í seinni hálfleik og gáfum þeim færi á að koma sér aftur inn í leikinn en ég er ánægður með hvernig við náðum að stoppa það af og vinna okkur til baka. Sérstaklega eftir að hafa misst Hákon Daða í meiðsli, en hann er gríðarlega stór karakter inni í hópnum og Harri líka.“ Hrannar fór sérstaklega fögrum orðum um framlag Leós og Haralds Björns. „Leó var frábær í horninu og sterkur í bakverðinum varnarlega. Þetta er ungur heimastrákur sem hefur æft gríðarlega vel og hefur bætt sig mjög mikið síðan í sumar. Sama með Harald Björn, sem steig upp og kom gríðarlega mikilvægur inn í þetta hjá okkur.“ Fleiri leikmenn fengu hrós frá þjálfaranum fyrir framlag sitt í sigrinum. „Daníel Bæring hefur einnig stigið upp hjá okkur varnarlega og hefur tekið miklum framförum og það er gaman að sjá hvað Mosfellingarnir eru að standa sig vel. Hans Jörgen fékk stærra hlutverk í leiknum í gær og við vitum alveg hvað hann getur og hann hefur stimplað sig inn í þessa deild, bæði varnar- og sóknarlega. Þetta var liðssigur.“ Hrannar var því sáttur við stigin tvö gegn Þórsurum. „Þetta var heilsteypt frammistaða hjá okkur gegn góðu Þórsliði og ég var hrikalega ánægður að ná í tvö stig gegn þeim.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.