Valur skorað 299 mörk í fyrstu átta leikjum tímabilsins
Sævar Jónasson

Valsmenn hafa farið mikinn í sóknarleik sínum í Olís-deild karla á tímabilinu og skorað hvorki meira né minna en 299 mörk í fyrstu átta leikjum sínum í deildinni. Það gerir tæplega 37,4 mörk að meðaltali í leik.

Til samanburðar skoruðu Valsmenn 726 mörk í 22 leikjum á síðustu leiktíð þegar liðið tryggði sér deildarmeistaratitilinn. Það gerir 33 mörk að meðaltali í leik og því ljóst að sóknarleikur Hlíðarendapilta hefur verið enn öflugri á yfirstandandi tímabili.

Valsmenn hafa skorað rúmlega fjórum mörkum meira að meðaltali í leik en á síðustu leiktíð og virðist fátt geta stöðvað markavélina á Hlíðarenda um þessar mundir.

Valur vann Stjörnuna í miklum markaleik í vikunni, 37-34 í 8.umferð Olís-deildarinnar en þar áður hafði liðið lagt ÍBV að velli, 36-28.

Flest mörk í einum leik á tímabilinu skoruðu Valsmenn gegn Víkingi þegar liðið vann sannfærandi sigur, 41-31. Þá skoruðu Valsmenn einnig 40 mörk í tapi gegn Fram fyrr á tímabilinu, sem undirstrikar hversu mikill kraftur hefur verið í sóknarleik liðsins.

Haldi Valsmenn áfram að skora á sama hraða út tímabilið myndu þeir enda með rúmlega 822 mörk í 22 leikjum, eða tæplega 100 mörkum meira en á síðustu leiktíð.

Næsta verkefni Valsmanna verður sannkallaður toppslagur þegar liðið mætir Aftureldingu í Olís-deildinni á laugardaginn klukkan 15:30. Þar verður áhugavert að sjá hvort markavél Valsmanna haldi áfram að mala gegn sterku liði Mosfellinga.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top