Ísak orðaður við lið í Meistaradeildinni
Kristinn Steinn Traustason

Ísak Steinsson, markvörður norska úrvalsdeildarliðsins Drammen, er orðaður við portúgalska stórliðið Sporting Lissabon.

Þetta kemur fram í færslu Norðmannsins Magnus Tveitdal Olsen á samfélagsmiðlinum X en hann segist hafa heimildir fyrir því að Sporting hafi áhuga á að fá íslenska markvörðinn til liðs við sig.

Ísak hefur undanfarin ár leikið með Drammen í norsku úrvalsdeildinni en gæti nú verið á leið til eins sterkasta félagsliðs Portúgals. Sporting hefur verið í fremstu röð portúgalsks handbolta undanfarin ár og leikur jafnframt í Meistaradeild Evrópu.

Þar leikur fyrir íslenski landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson en Orri Freyr gengur í raðir Gummersbach næsta sumar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top