Danska stórstjarnan Mathias Gidsel, leikmaður Füchse Berlin, er langmarkahæsti leikmaður Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir að riðlakeppninni lauk í síðustu viku. Gidsel hefur skorað 65 mörk í fyrstu sex leikjum keppninnar, eða tæplega ellefu mörk að meðaltali í leik. Hann hefur því skorað 17 mörkum meira en næsti maður á listanum. Portúgalinn Francisco Costa, leikmaður Sporting, er annar markahæstur með 48 mörk en þeir Aljus Anzic hjá Celje og Simon Jeppsson hjá Kolstad deila þriðja sætinu með 47 mörk hvor. Báðir hafa þeir lokið keppni í Meistaradeildinni í ár og skora því ekki fleiri mörk í keppninni. Manuel Zehnder, leikmaður GOG, kemur þar á eftir með 44 mörk og Martim Costa, leikmaður Sporting, er í sjötta sæti með 43 mörk. Athygli vekur að Sporting á tvo leikmenn á meðal sex markahæstu leikmanna keppninnar en Costa-bræðurnir hafa saman skorað 91 mark í riðlakeppninni. Einar Bragi Aðalsteinsson og Ómar Ingi Magnússon eru markahæstu Íslendingarnir með 29 mörk hvor. Einar Bragi, leikmaður Kristianstad hefur lokið keppni en Ómar Ingi og félagar í Magdeburg eru komnir í milliriðla keppninnar. Tíu markahæstu leikmenn Meistaradeildarinnar eftir riðlakeppnina:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.