Innan við 300 miðar eftir á Úkraínuleikinn
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Miðasala gengur vel á fyrsta leik íslenska karlalandsliðsins í undankeppni EM 2028. Ísland tekur á móti Úkraínu í Laugardalshöll miðvikudaginn 4. nóvember klukkan 19:30.

Samkvæmt Jóni Gunnlaugi Viggóssyni, starfsmanni HSÍ, eru innan við 300 miðar eftir á leikinn þegar fjórir dagar eru til stefnu. Þá eru aðeins átta miðar eftir í VIP.

Ísland er í riðli með Serbíu, Úkraínu og Eistlandi. Að loknum leiknum í Höllinni heldur íslenska liðið til Eistlands þar sem liðin mætast sunnudaginn 8. nóvember. Um er að ræða fyrstu tvo leiki Íslands í undankeppninni.

Miðasala á leikinn gegn Úkraínu fer fram á Stubb. Það fer hver að verða síðastur að kaupa sér miða.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top