Kretzschmar hefur miklar áhyggjur af liði Rúnars
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

HSG Wetzlar hefur enn ekki unnið leik í þýsku Bundesligunni eftir tíu umferðir og staða liðsins veldur Stefan Kretzschmar, fyrrverandi landsliðsmanni Þýskalands, miklum áhyggjum. Wetzlar mætir Melsungen í Hessen-slagnum í dag og freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

Wetzlar hefur aðeins náð í tvö stig í fyrstu tíu leikjum tímabilsins. Þau komu úr jafnteflum á heimavelli gegn ThSV Eisenach og Rhein-Neckar Löwen.

Síðasti sigur liðsins í Bundesligunni kom 23. maí á síðasta tímabili þegar Wetzlar vann HC Erlangen 29-26 á heimavelli.

Stefan Kretzschmar lýsti yfir miklum áhyggjum af stöðu félagsins í hlaðvarpsþættinum Kretzsche & Schmiso.

„Ég hef verulegar áhyggjur af Wetzlar. Þeir gera svo ótrúlega mörg mistök í leikjunum. Dominik Mappes var nánast með 100 í HPI-einkunn í útileiknum gegn Füchse Berlin en restin af liðinu gerði bara fáránlega mikið af mistökum,“ sagði Kretzschmar.

„Ég skil ekki af hverju þeir standa sig ekki. Þeir hafa í raun mannskap til að vera komnir með fjögur til sex stig,“ sagði hann.

Wetzlar hefur átt í vandræðum í sóknarleiknum, sérstaklega í stöðu vinstri skyttu.

Jona Schoch og Doruk Pehlivan hafa glímt við meiðsli og Nikolaj Læsø hefur ekki náð sér á strik.

Kretzschmar telur þó að varnarleikur liðsins ætti að vera mun betri en raun ber vitni.

„Vörnin ætti í raun að vera að virka vel,“ sagði hann og benti á að Josip Šimić og Petter Øverby mynduðu sterkt miðvarðarpar.

„Þetta er miðvarðarpar sem hefur alla burði til að spila í Bundesligunni.“

Eftir leikinn gegn MT Melsungen tekur við landsleikjahlé í þýsku Bundesligunni.

Að því loknu bíður Wetzlar mikilvægur leikur í fallbaráttunni gegn HBW Balingen-Weilstetten.

Þar á eftir mætir liðið toppliði Kiel á útivelli áður en Frisch Auf Göppingen kemur í heimsókn í lok nóvember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top