Þýski landsliðsmaðurinn Juri Knorr hefði hæglega getað farið allt aðra leið á íþróttaferlinum. Hinn 26 ára gamli leikstjórnandi var efnilegur knattspyrnumaður hjá Hamburger SV á sínum yngri árum en ákvað að leggja fótboltaskóna á hilluna eftir að félagið krafðist þess að hann hætti í handbolta. Þetta kemur fram í nýrri ævisögu Juri Knorr, Juri Knorr. Der Spielmacher – die Biografie, sem þýski miðillinn BILD fjallar um. Knorr lék með unglingaliðum Hamburger SV frá U12 upp í U14 og var þar í hópi efnilegra leikmanna. Meðal samherja hans voru Jann-Fiete Arp og Josha Vagnoman, sem síðar varð leikmaður Stuttgart og þýska landsliðsins. Knorr var örvfættur og þótti hafa góða yfirsýn yfir leikinn. „Ég hafði góða yfirsýn og gaf góðar sendingar, svolítið eins og í handboltanum,“ rifjar Knorr upp í bókinni. Þegar Knorr var 13 ára gamall stóð honum til boða að taka næsta skref hjá Hamburger SV og ganga til liðs við afreksakademíu félagsins. Því fylgdi hins vegar skýrt skilyrði. Forráðamenn Hamburger SV kröfðust þess að Knorr hætti að æfa handbolta og einbeitti sér alfarið að knattspyrnunni. Knorr og faðir hans, fyrrverandi handknattleiksmaðurinn Thomas Knorr, höfnuðu þeirri kröfu þar sem þeim þótti þrýstingurinn og vinnubrögðin fráleitur gagnvart svo ungum dreng. Skömmu síðar kom annað stórlið í þýska fótboltanum til sögunnar. Frank Baumann, þáverandi íþróttastjóri Werder Bremen, hafði beint samband við fjölskyldu Knorr og reyndi að fá hann til félagsins. Nálgun Bremen var mun sveigjanlegri og sýndi meiri skilning á því að Knorr vildi halda áfram að stunda báðar íþróttirnar. Fjölskyldan íhugaði þann möguleika um tíma en að lokum varð handboltinn fyrir valinu. Faðir hans, Thomas, fær þó enn þann dag í dag sömu spurninguna frá fólki í kringum sig: Hversu langt hefði Juri Knorr getað náð í atvinnumennsku í fótbolta? Í ævisögunni kemur einnig fram hvernig síða hárið og taglið, sem hafa orðið einkennandi fyrir Knorr, urðu til. Þegar heimsmeistaramótið í knattspyrnu fór fram í Þýskalandi árið 2006 var Knorr aðeins sex ára gamall. Hann heillaðist af ítalska landsliðinu og ákvað að safna hári eftir að hafa fylgst með leikmönnum þess. „Hinn efnilegi örvfætti drengur lét hárið vaxa vegna þess að Ítalirnir voru með svo marga flotta náunga með frábærar hárgreiðslur,“ segir í ævisögunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.