Hélt bara áfram að láta vaða á markið
Egill Bjarni Friðjónsson

„Ég er ótrúlega ánægður. Það er rosalega gott að fara inn í landsleikjahlé með tvö stig og vera komnir aðeins frá neðri hluta deildarinnar,“ sagði Atli Steinn Arnarson, leikmaður ÍBV, í viðtali á samfélagsmiðlasíðu félagsins eftir sigurinn á Stjörnunni í dag.

Eyjamenn unnu 31-26 sigur í níundu umferð Olís-deildar karla eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik, 16-18. Atli Steinn fór á kostum og skoraði fjórtán mörk, þar af tólf í síðari hálfleik, auk þess að gefa fimm stoðsendingar.

„Ég var lengi í gang í fyrri hálfleik og þetta var ekki alveg að detta þar. Síðan fann ég það í fyrsta skotinu í seinni hálfleik að þetta væri að fara að detta og ég hélt bara áfram að láta vaða.“

Atli Steinn skoraði tólf af fimmtán mörkum ÍBV eftir hlé og lék lykilhlutverk á lokakaflanum. Staðan var jöfn, 26-26, þegar rúmar sex mínútur voru eftir en Eyjamenn skoruðu síðustu fimm mörk leiksins. Fjögur þeirra komu frá Atla Steini.

Hann var einnig spurður út í þjálfaraskiptin hjá ÍBV en Bergvin Haraldsson tók við liðinu af Erlingi Richardssyni fyrir um mánuði.

„Bergvin er að koma rosalega vel inn í þetta og mér finnst ekkert vera gríðarlega miklar breytingar. Það er góður andi í liðinu og Bergvin kemur vel inn í þetta.“

ÍBV fer inn í landsleikjahléið með tíu stig eftir níu leiki og situr í sjötta sæti deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top