Jón Karl Einarsson, hornamaður Víkings sem kom til félagsins frá Haukum, fékk mikið lof í nýjasta þætti Handkastsins. Sérfræðingurinn gekk svo langt að kalla félagaskiptin kaup sumarsins og Guðjón Guðmundsson, Gaupi, tók undir það mat. Athygli vekur að Víkingur höfðu hljótt um félagaskipti leikmannsins til félagsins því Jón Karl var aldrei kynntur á samfélagsmiðla síðu félagsins sem nýr leikmaður liðsins líkt og aðrir leikmenn sem gengu í raðir Víkings í sumar. Gaupi ræddi frammistöðu Víkings gegn ÍBV og sagði margt jákvætt við leik liðsins þótt byrjunin hefði verið erfið. „Mér fannst Víkingarnir gegn ÍBV byrja illa og það hefur svolítið verið saga þeirra í vetur. En við verðum að hæla Aðalsteini Eyjólfssyni. Víkingarnir eru í góðu standi, þeir eru að spila á sínum styrkleikum og síðan eru þarna leikmenn sem eru betri en menn halda.“ Þar nefndi Gaupi meðal annars Sigurð á línunni, Ísak Óla sem stýrir leik liðsins og Jón Karl í horninu. „Ég skil ekki hvernig þessi leikmaður náði ekki í gegn á Ásvöllum. Hann er frábær hornamaður.“ Sérfræðingurinn tók þá við boltanum. „Ég ætla að taka þennan bolta með Jón Karl Einarsson. Ég vil meina að þetta séu kaup sumarsins,“ sagði Sérfræðingurinn. Jón Karl er annar markahæsti leikmaður Víkings á tímabilinu með 39 mörk en Sigurður Páll Matthíasson er markahæsti leikmaður liðsins hingað til með 62 mörk. Gaupi var sammála og taldi Jón Karl hafa ýmsa kosti sem nýttust Víkingum vel. „Mér finnst hann geggjaður leikmaður. Hann nýtir færin sín vel og hann getur spilað bakvörð í vörn. Hann er fljótur fram og skynsamur. Hann er að taka stundum einhverjar dúllur af og til sem fara í taugarnar á mér en þetta er gríðarlega öflugur strákur.“ Þrátt fyrir hrósið varaði Gaupi Víkinga við því að slaka á. Baráttan fyrir áframhaldandi sæti í Olís-deildinni væri enn í fullum gangi. „Víkingar þurfa að halda vel á spöðunum. Eins og þeir eru að spila núna þá geta þeir náð í fleiri stig og þeirra markmið er að halda sæti sínu í deildinni, það er ekkert annað. Það lítur út fyrir að það gæti tekist en þeir mega ekki fagna of snemma,“ sagði Gaupi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.