Elvar um brottrekstur Machulla – Þetta eru skrítnar aðstæður
Michael Hundt / dpa Picture-Alliance via AFP

Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður og leikmaður þýska stórliðsins Magdeburg, segir það sérstaka stöðu að Maik Machulla hafi verið rekinn sem þjálfari Rhein-Neckar Löwen skömmu eftir að Elvar samdi við félagið. Elvar gengur til liðs við Löwen næsta sumar en segir að Machulla hafi átt stóran þátt í því að sannfæra hann um félagaskiptin.

Elvar ræddi við Handkastið um félagaskiptin, brottrekstur Machulla og framtíð frænda síns, Hauks Þrastarsonar, sem leikur með Rhein-Neckar Löwen.

Elvar staðfesti að það hefði komið til greina að framlengja dvölina hjá Magdeburg og að fleiri félög hefðu sýnt honum áhuga.

„Það kom alveg til greina að vera þar og það voru önnur lið líka í boði. En þetta heillaði mig. Þjálfarinn talaði mikið við mig og lýsti fyrir mér hlutverkinu sem ég myndi fá og hvernig þeir væru að byggja félagið upp aftur. Þeir vildu fara aftur á toppinn og berjast við bestu liðin og mér leist vel á það. En svona eru íþróttirnar, það getur allt breyst á einum degi.“

„Ég er samt spenntur að fara þarna og vonandi verður eitthvað skemmtilegt á næsta ári,“ sagði Elvar í samtali við Handkastið.

Machulla var látinn taka pokann sinn hjá Rhein-Neckar Löwen á dögunum eftir erfiða byrjun liðsins á tímabilinu. Brottreksturinn setur félagaskipti Elvars í nokkuð sérstakt samhengi enda hafði hann rætt mikið við þjálfarann áður en hann tók ákvörðun sína.

„Þetta eru skrítnar aðstæður. Þegar maður skrifar undir er hann þarna með sínar hugmyndir fyrir framtíðina, næstu árin. Það verður spennandi að sjá hvað þeir gera núna á þessu tímabili og á næsta ári, hvort þeir ætli að fylgja hans plönum.“

Elvar var einnig spurður út í tíðar þjálfarabreytingar hjá félaginu undanfarin ár.

„Þeir eru búnir að breyta miklu og þetta átti að vera öðruvísi með hann. En svona gerist. Kannski gengur eitthvað illa og þá geta hlutirnir breyst mikið. En ég er alveg spenntur að koma þarna á næsta ári og gera eitthvað.“

Elvar staðfesti jafnframt að fleiri félög hefðu verið í myndinni áður en hann ákvað að ganga til liðs við Rhein-Neckar Löwen.

„Það voru alveg nokkur lið. Ég hugsaði mig vel um og þetta tók alveg langan tíma. En þetta var eitthvað sem mig langaði að gera.“

Handkastið greindi frá því í vikunni að þýsku félögin Kiel og Gummersbach hefðu áhuga á Hauki Þrastarsyni, frænda Elvars og leikmanni Rhein-Neckar Löwen. Elvar var spurður hvort hann væri í reglulegu sambandi við Hauk til að sannfæra hann um að vera áfram hjá félaginu.

„Ég veit ekkert hvað hann vill gera eða hvaða möguleika hann hefur.“

„En við töluðum náttúrulega alveg saman þegar ég var að hugsa þetta og skrifa undir. Við vorum í góðum samskiptum og það er bara spennandi að spila aftur saman. Við spiluðu saman á Selfossi og það verður bara gaman að spila aftur með honum í félagsliði,“ sagði Elvar Örn.

Elvar er þó enn leikmaður Magdeburg og segir mikla tilhlökkun ríkja fyrir framhaldinu á tímabilinu. Hann er ánægður með spilamennsku liðsins og segir markmiðin skýr.

„Mér finnst við vera að spila mjög vel. Það er mikill stígandi í þessu og ég er bara spenntur fyrir tímabilinu. Við stefnum náttúrulega á alla titla og að reyna að vinna þá.“

Elvar segir jafnframt að breytt fyrirkomulag Meistaradeildarinnar gefi þjálfurum meira svigrúm til að dreifa álaginu á leikmenn. „Þetta gefur þjálfurunum aðeins svigrúm til þess að leyfa mönnum að spila og prófa kannski nýja hluti. Það er líka jákvætt,“ sagði Elvar Örn Jónsson í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top