Spænski þjálfarinn Ambros Martín hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Katar. Martín er einn sigursælasti þjálfari Evrópu í kvennahandbolta undanfarna áratugi en tekur nú við nýrri áskorun í karlahandboltanum. Martín tekur við starfinu af Veselin Vujović sem stýrði Katar til silfurverðlauna á Asíuleikunum fyrr á þessu ári. Spánverjinn mun samhliða landsliðsstarfinu halda áfram að þjálfa Al-Duhail í Katar en hann tók við félagsliðinu í febrúar á þessu ári. Martín, sem er 58 ára gamall, hefur átt afar farsælan þjálfaraferil og er hvað þekktastur fyrir störf sín hjá ungverska stórliðinu Győr. Þar varð hann fjórum sinnum Evrópumeistari, árin 2013, 2014, 2017 og 2018, auk þess að vinna fimm ungverska meistaratitla. Hann hefur einnig stýrt kvennalandsliðum Rúmeníu, Rússlands og Spánar. Undir hans stjórn vann Rússland bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu árið 2019 en hann stýrði síðast spænska kvennalandsliðinu á HM 2025. Fyrsta stóra verkefni Martíns með Katar verður heimsmeistaramót karla sem fram fer í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Katar er þar í E-riðli ásamt Svíþjóð, Noregi og Grikklandi og bíður því krefjandi verkefni að tryggja sér sæti í milliriðli mótsins. Katar átti sitt besta heimsmeistaramót árið 2015 þegar liðið komst alla leið í úrslitaleik HM á heimavelli undir stjórn Spánverjans Valero Rivera. Þar tapaði Katar gegn Frakklandi og varð fyrsta þjóðin utan Evrópu til að vinna til verðlauna á heimsmeistaramóti karla. Martín hefur þegar hafið störf með landsliðinu og fram undan eru tveir vináttulandsleikir gegn Sádi-Arabíu þar sem hann fær fyrstu tækifærin til að móta liðið fyrir komandi heimsmeistaramót.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.