Serbar völtuðu yfir næstu mótherja Íslands
PATRIC SODERSTROM /AFP

Átta leikir fóru fram í undankeppni EM 2028 í handbolta karla í kvöld þar sem fyrstu umferð undankeppninnar lauk. Þýskaland, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, vann tíu marka sigur á Belgíu á meðan Serbar unnu stórsigur á Eistlandi, næstu mótherjum Íslands.

Þjóðverjar hófu undankeppnina með sannfærandi 42–32 sigri á Belgíu. Alfreð Gíslason og lærisveinar hans komu til leiks sem silfurverðlaunahafar frá síðasta Evrópumóti og létu strax til sín taka með því að skora 42 mörk í fyrsta leik.

Serbar sendu íslenska landsliðinu skýr skilaboð með 39–18 stórsigri á Eistlandi. Serbar og Íslendingar eru saman í riðli þrjú en Ísland vann Úkraínu 48–26 í Laugardalshöll í gærkvöldi. Vukasin Vorkapić var markahæstur Serba með sjö mörk, Dragan Pechmalbec skoraði fimm og Darko Dukic fjögur. Hjá Eistlandi var Dener Jaanimaa markahæstur með fimm mörk og Mihkel Lõpp skoraði fjögur.

Vladimir Cupara markvörður Serbíu átti einnig stórleik og varði 15 skot, þar af þrjú vítaköst. 

Ísland og Serbía eru því bæði með tvö stig eftir fyrstu umferðina. Íslenska liðið mætir Eistlandi á útivelli á sunnudaginn og verður áhugavert að sjá hvernig Eistlendingar bregðast við eftir 21 marks tap gegn Serbum.

Norðmenn hófu sína undankeppni einnig af miklum krafti og unnu Georgíu 40–23. Kasper Lien var markahæstur með átta mörk úr átta skotum. Zoran Ilic og Soltán Szita voru markahæstir í liði Ungverja sem unnu öruggan ellefu marka sigur á Svartfjallalandi, 32–21. Báðir skoruðu þeir fimm mörk hvor í leiknum á meðan Svíar höfðu betur gegn Grikkjum, 33–24. Þar var Albin Lagergren markahæstur með sjö mörk í liði Svía en Theodoros Boskos var markahæstur í leiknum með átta mörk.

Frakkar undir stjórn Talants Dujshebaev unnu Rúmena 34–27 í fyrsta leik sínum í undankeppninni. Frakkar eru að hefja nýjan kafla undir stjórn Dujshebaev sem tók við landsliðinu fyrr á þessu ári. Dika Mem skoraði sjö mörk en fjórir leikmenn voru með fjögur mörk, Minne, Descat, Fabregas og Remili.

Hollendingar unnu Finna með níu marka mun, 33–24, en jafnasti leikur kvöldsins fór fram á Ítalíu þar sem heimamenn höfðu betur gegn Slóvökum, 34–32. Leo Prantner var markahæstur með sjö mörk.

Úrslit kvöldsins í undankeppni EM 2028:

Serbía – Eistland 39–18
Noregur – Georgía 40–23
Ungverjaland – Svartfjallaland 32–21
Svíþjóð – Grikkland 33–24
Holland – Finnland 33–24
Frakkland – Rúmenía 34–27
Ítalía – Slóvakía 34–32
Þýskaland – Belgía 42–32

Ísland mætir Eistlandi á sunnudaginn

Næsta umferð undankeppninnar fer fram um helgina. Ísland sækir Eistland heim á sunnudaginn og freistar þess að fylgja eftir stórsigrinum á Úkraínu.

Serbar, sem unnu Eistlendinga í kvöld, mæta Úkraínu í næstu umferð. Bæði Ísland og Serbía hafa því hafið undankeppnina með stórsigrum og lagt grunninn að baráttunni um efstu sæti riðilsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top