Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalands var langt frá því að vera sáttur með varnarleik sinna manna í tíu marka sigri gegn Belgíu, 42–32, í undankeppni EM 2028 í Berlín í gærkvöldi. Þjóðverjar voru í miklum vandræðum með varnarleikinn framan af leik og náðu ekki að hrista spræka Belga af sér þrátt fyrir að vera mun sigurstranglegri fyrir leikinn. Þegar staðan var 15–12 Þjóðverjum í vil í fyrri hálfleik fékk Alfreð nóg og tók leikhlé þar sem hann lét leikmenn sína heyra það. „Vandamálið okkar er vörnin. Þeir komast aftur og aftur allt of auðveldlega í gegn. Takið ykkur saman. Þetta er ekki vináttulandsleikur, þetta er undankeppni Evrópumótsins,“ sagði Alfreð ákveðinn við sína menn í leikhléinu. Þjóðverjar leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 22–18, en varnarleikurinn hafði verið helsta áhyggjuefni Alfreðs fyrstu 30 mínúturnar. Marko Grgic, leikmaður þýska landsliðsins tók undir gagnrýni þjálfarans í samtali við þýska sjónvarpsstöð í hálfleik. Hann sagði að Þjóðverjar hefðu ekki náð nægilega góðum tökum á varnarleiknum og að liðið þyrfti að standa þéttar saman og neyða Belga til að taka erfiðari skot. Þjóðverjar náðu loks að slíta sig frá Belgum þegar leið á seinni hálfleikinn og unnu að lokum öruggan tíu marka sigur, 42–32. Alfreð nýtti jafnframt tækifærið til að prófa nokkra leikmenn í leiknum en hann mun tilkynna lokahóp Þjóðverja fyrir heimsmeistaramótið í janúar eftir landsleikinn gegn Slóvakíu á sunnudaginn. Þjóðverjar verða gestgjafar heimsmeistaramótsins sem hefst 13. janúar næstkomandi og því er hver landsleikur mikilvægur í undirbúningi liðsins fyrir mótið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.