Einar Þorsteinn verður ekki með gegn Eistlandi
Sævar Jónasson

Einar Þorsteinn Ólafsson verður ekki með íslenska karlalandsliðinu þegar það mætir Eistlandi á útivelli á sunnudag í undankeppni EM 2028.

Þetta staðfesti Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska landsliðsins í samtali við Handkastið í morgun en íslenska landsliðið æfir þessa stundina í Virkinu áður en liðið heldur til Eistlands.

Einar Þorsteinn missti einnig af leiknum gegn Úkraínu í Laugardalshöll á miðvikudag vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik með Hamburg í þýsku Bundesligunni á dögunum. Teitur Örn Einarsson var kallaður inn í landsliðshópinn í hans stað fyrir Úkraínuleikinn.

Einar Þorsteinn er á æfingu liðsins en var í meðhöndlun hjá sjúkraþjálfurum landsliðsins áður en hann heldur aftur út til Þýskalands.

Ísland hóf undankeppnina á 22 marka sigri á Úkraínu. Leikurinn gegn Eistlandi hefst klukkan 16 á sunnudag.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top