ÍR lenti á Vals veggnum í seinni hálfleik
Egill Bjarni Friðjónsson

Valur vann sjö marka sigur á ÍR, 24–17, í Olís-deild kvenna í kvöld eftir að hafa verið þremur mörkum undir í hálfleik, 9–12. Valskonur tóku við sér eftir hlé og unnu seinni hálfleikinn 15–5. Um var að ræða fyrsta leikinn í 9.umferð deildarinnar en nú hefur bæði Valur og ÍR leikið einn leik gegn öllum liðum deildarinnar.

ÍR byrjaði leikinn af krafti, skoraði fyrstu þrjú mörkin og komst í 5–1. Valskonur unnu sig inn í leikinn og komust yfir í fyrsta sinn þegar Guðrún Hekla Traustadóttir skoraði í stöðunni 8–7. Gestirnir svöruðu hins vegar með fjórum mörkum í röð og leiddu með þremur mörkum í leikhléi.

Valskonur jöfnuðu í 13–13 þegar tæpar sex mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Enn var jafnt, 14–14, á 42. mínútu en þá náðu heimakonur undirtökunum. Þær skoruðu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 18–14. ÍR náði aldrei að ógna forskotinu eftir það og Valur vann að lokum öruggan sigur.

Sóknarleikur ÍR gekk afleitlega í seinni hálfleik og voru leikmenn og þjálfarateymi ÍR með engar lausnir sóknarlega.

Hafdís Renötudóttir varði 15 skot í marki Vals og skoraði auk þess eitt mark. Ásdís Þóra Ágústsdóttir var markahæst Valskvenna með fimm mörk og Arna Karitas Eiríksdóttir skoraði fjögur.

Hjá ÍR var Sara Dögg Hjaltadóttir markahæst með fimm mörk, Sylvía Sigríður Jónsdóttir skoraði fjögur og Matthildur Lilja Jónsdóttir þrjú. Elísa Helga Sigurðardóttir varði 11 skot og Sif Hallgrímsdóttir eitt.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top