Þýski landsliðsmaðurinn Luca Witzke gæti aðeins stoppað stutt hjá HSV Hamburg þrátt fyrir að hafa gengið til liðs við félagið frá Flensburg í gær. Samkvæmt þýskum fjölmiðlum hafa tvö önnur félög þegar sýnt honum áhuga fyrir næsta tímabil. Witzke, sem er 27 ára gamall, rifti samningi sínum við SG Flensburg-Handewitt og samdi við Hamburg út yfirstandandi tímabils. Handkastið greindi frá viðræðum félaganna í síðustu viku áður en félagaskiptin voru staðfest í gær. Samkvæmt þýska miðlinum Welt eru bæði MT Melsungen og HC Erlangen sögð hafa áhuga á að fá Witzke til liðs við sig fyrir tímabilið 2027/28. Það gæti því farið svo að Witzke leiki aðeins með Hamburg næstu mánuðina áður en hann heldur á nýjan áfangastað. Hamburg þurfti nauðsynlega að styrkja leikmannahóp sinn eftir að Moritz Sauter sleit krossband í september. Witzke er ætlað að fylla skarð hans í leikstjórnandastöðunni. Þýski landsliðsmaðurinn gekk til liðs við Flensburg frá Leipzig sumarið 2025 en hefur átt erfitt uppdráttar vegna meiðsla. Hann var frá keppni í ellefu mánuði vegna axlarmeiðsla og lék sinn fyrsta leik á tímabilinu þann 13. október síðastliðinn. Johannes Bitter, íþróttastjóri Hamburg hefur lýst yfir ánægju með komu Witzke og segir mikilvægt að gefa honum tíma til að finna taktinn á ný eftir langvarandi meiðsli. Witzke hefur leikið 51 landsleik fyrir Þýskaland og var í landsliðshópnum sem vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í París árið 2024. Hann gæti leikið sinn fyrsta leik fyrir Hamburg strax í kvöld þegar liðið heimsækir Magdeburg í sextán liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar. Á laugardaginn mætir Hamburg síðan Erlangen í þýsku Bundesligunni, einmitt öðru félaganna sem sögð eru hafa áhuga á Witzke fyrir næsta tímabil.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.