Stymmi klippari var allt annað en sáttur við treyjulitina í viðureign Selfoss og KA/Þórs í 8. umferð Olís-deildar kvenna. Rætt var um sigur Selfoss í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins en KA/Þór lék í svörtum treyjum gegn vínrauðum treyjum heimakvenna. Stymmi sagði litina hafa gert litblindum áhorfendum erfitt fyrir að fylgjast með leiknum í Handboltapassanum. „Ég fékk sent myndband frá aðila sem var að horfa á leikinn í Handboltapassanum. Árni Snær og Þorvar Bjarmi, dómarar leiksins, taka sennilega ákvörðun um það í hvaða treyjum liðin spila og KA/Þór spilaði eðlilega í svörtu gegn vínrauðum Selfyssingum.“ Honum þótti lítið tillit hafa verið tekið til þeirra sem ættu erfitt með að greina litina í sundur og sparaði ekki stóru orðin. „Þetta var galið. Það var ekki séns að sjá hvort liðið var hvað. Ég veit að félag litblindra er brjálað yfir þessu.“ „Ég ætla að senda Skolphreinsun Ásgeirs á þann eða þá aðila sem leyfðu KA/Þór að spila í svörtu.“ Í kjölfarið ræddu þáttastjórnendur hver bæri ábyrgð á því að samþykkja treyjuliti liðanna en Stymmi var afdráttarlaus í lýsingu sinni á upplifuninni fyrir framan sjónvarpið. „Þvílíka djöfulsins skitan fyrir okkur litblinda fólkið heima í stofu. Það var ekki möguleiki að sjá hvað var að gerast í þessum leik.“


Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.