Ómar Ingi fór á kostum í þýska bikarnum
Ronny HARTMANN /AFP

Fimm leikir fóru fram í sextán liða úrslitum þýsku bikarkeppninnar í handbolta í kvöld þar sem íslenskir leikmenn voru í eldlínunni. Ómar Ingi Magnússon fór á kostum í stórsigri Magdeburg gegn Hamburg á meðan Kiel slapp með skrekkinn gegn Lemgo og Göppingen tryggði sér nauman sigur á Balingen.

Magdeburg, lið íslensku landsliðsmannanna Gísla Þorgeirs Kristjánssonar, Ómars Inga Magnússonar og Elvars Arnar Jónssonar, vann Hamburg 43–32 eftir að hafa leitt 22–19 í hálfleik.

Ómar Ingi var markahæsti leikmaður Magdeburg með ellefu mörk og var sérstaklega öflugur í fyrri hálfleik. Magdeburg náði snemma góðu forskoti en Hamburg tókst að minnka muninn niður í þrjú mörk fyrir hálfleik.

Heimamenn tóku hins vegar öll völd í síðari hálfleik og tryggðu sér að lokum sannfærandi ellefu marka sigur. Gísli Þorgeir skoraði fjögur mörk. Luca Witzke, sem gekk til liðs við Hamburg frá Flensburg fyrr í vikunni, lék sinn fyrsta leik fyrir félagið og skoraði þrjú mörk.

THW Kiel tryggði sér sæti í átta liða úrslitum eftir dramatískan 35–34 útisigur gegn Lemgo. Kiel leiddi 18–14 í hálfleik en Lemgo tókst að jafna metin í 25–25 þegar tólf mínútur lifðu leiks. Gestirnir náðu aftur forskoti en heimamenn héldu spennunni allt til leiksloka.

Lukas Zerbe og Domen Makuc voru markahæstir Kiel með sjö mörk hvor en Andreas Wolff varði fjórtán skot. Niels Versteijnen, Levin Wanner og Samuel Zehnder skoruðu sex mörk hver fyrir Lemgo.

Göppingen, félag Ýmis Arnar Gíslasonar, vann Balingen 34–33 í einum mest spennandi leikjum kvöldsins. Staðan var jöfn, 19–19, í hálfleik og Balingen náði þriggja marka forskoti í upphafi síðari hálfleiks. Göppingen sneri hins vegar leiknum sér í vil og náði tveggja marka forskoti undir lokin.

Balingen tókst að jafna í 33–33 á lokamínútunni en Oskar Sunnefeldt skoraði sigurmark Göppingen þegar 23 sekúndur voru eftir. Heimamenn fengu tækifæri til að jafna en töpuðu boltanum í síðustu sókninni. Elias Newel var markahæstur Göppingen með níu mörk og Marcel Schiller skoraði átta. Mex Raguse skoraði sex mörk fyrir Balingen. Ýmir Örn var ekki á meðal markaskorara Göppingen.

HC Erlangen, félag íslensku landsliðsmannanna Viggós Kristjánssonar og Andra Más Rúnarssonar, tryggði sér einnig sæti í átta liða úrslitum með öruggum 38–26 útisigri gegn Emsdetten. Erlangen leiddi 21–15 í hálfleik og jók forskot sitt enn frekar í síðari hálfleik. Bialowas var markahæstur Erlangen með sjö mörk en Yannick Terhaer skoraði fimm fyrir Emsdetten. Andri Már skoraði tvö mörk í leiknum en Viggó er að glíma við meiðsli.

Füchse Berlin, ríkjandi bikarmeistarar, unnu sannfærandi 42–30 útisigur gegn Potsdam. Berlínarliðið leiddi 23–14 í hálfleik og hafði mikla yfirburði allan leikinn. Danski landsliðsmaðurinn Mathias Gidsel var í sérflokki og skoraði þrettán mörk fyrir Füchse Berlin.

Aitor Ariño bætti við átta mörkum og Tobias Grøndahl skoraði sex. Giacomo Savini var markahæstur Potsdam með sex mörk.

Úrslit kvöldsins í þýsku bikarkeppninni:

Magdeburg – Hamburg 43–32
Lemgo – THW Kiel 34–35
Balingen – Göppingen 33–34
Emsdetten – Erlangen 26–38
Potsdam – Füchse Berlin 30–42

Síðustu tveir leikir sextán liða úrslitanna fara fram á morgun, fimmtudag.

MT Melsungen, félag Reynis Þórs Stefánssonar, tekur á móti Bergischer HC sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar. Þá mætir Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, liði Flensburg á útivelli.

Dregið verður í átta liða úrslitin á sunnudaginn eftir stórleik Magdeburg og Flensburg í þýsku Bundesligunni. Átta liða úrslitin fara fram 16. og 17. desember.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top