Telur sig hafa verið svikinn um 20 milljónir króna
Sævar Jónasson

Þýski handknattleiksmaðurinn Valentin Spohn, sem lék um árabil í þýsku Bundesligunni hefur leitað til lögfræðings eftir að hafa tapað um 130 þúsund evrum, jafnvirði um 20 milljóna íslenskra króna í fjárfestingarverkefni sem tengist fyrrverandi þýskum stjórnmálamanni.

Valentin Spohn sem er 29 ára gamall og lék um árabil í þýska handboltanum. Hann var meðal annars leikmaður TuS N-Lübbecke frá 2018 til 2022 en leikur nú með Al-Qurain SC í Kúveit er í fjárhagslegri deilu við Tobias Walkenhorst, fyrrverandi sveitarstjórnarmann þýska Kristilega demókrataflokksins (CDU).

Þýska blaðið Bild greinir frá því að Walkenhorst hafi haft samband við Spohn í apríl síðastliðnum og boðið honum að fjárfesta í verkefnum tengdum hleðslustöðvum fyrir rafbíla og sólarorkuverum. Samkvæmt umfjöllun Bild á Walkenhorst meðal annars að hafa vísað til stjórnmálatengsla sinna og möguleika á fjárfestingum í verkefni á vegum sveitarfélags.

Spohn ákvað að leggja fjármuni í verkefnið en þegar kom að því að endurgreiða fjárfestinguna bárust peningarnir ekki til baka eins og lofað hafði verið. Samkvæmt upplýsingum Spohn nemur fjárhagslegt tjón hans um 130 þúsund evrum.

Hann hefur nú ráðið lögfræðing til að reyna að endurheimta fjármunina og málið er til rannsóknar hjá þýskum saksóknara. Spohn er þó ekki sá eini sem segist hafa tapað peningum í tengslum við fjárfestingarnar. Samkvæmt Bild eru fleiri einstaklingar taldir hafa orðið fyrir fjárhagslegu tjóni og gæti heildarupphæðin numið yfir einni milljón evra, sem jafngildir meira en 150 milljónum íslenskra króna.

Walkenhorst sat áður í sveitarstjórn fyrir CDU en lét af stjórnmálastörfum í júní síðastliðnum. Hann hefur tjáð sig um málið í þýskum fjölmiðlum og segist taka stöðuna alvarlega. Hann hefur hins vegar ekki viljað ræða einstaka samninga eða greiðslur opinberlega.

Spohn vonast nú til að geta endurheimt fjármunina með aðstoð lögfræðings síns.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top