Fjárhagsvandræðin hjá ungverska stórliðinu Györ eru farin að hafa veruleg áhrif á félagaskiptamarkaðinn í evrópskum kvennahandbolta. Danska stórliðinu Team Esbjerg hafa verið boðnir fimm til sex leikmenn frá Györ í gegnum umboðsmenn og þurfti stjórn danska félagsins að funda sérstaklega vegna þeirra óvæntu tækifæra sem hafa skapast. Györ, sem hefur unnið Meistaradeild Evrópu sjö sinnum, glímir við alvarlega fjárhagserfiðleika og hefur óskað eftir því að leikmenn félagsins samþykki verulegar launalækkanir. Samkvæmt dönskum fjölmiðlum hefur verið rætt um allt að 50 prósenta lækkun launa en jafnframt hefur félagið opnað á að leikmenn yfirgefi félagið til að draga úr rekstrarkostnaði. Bjarne Pedersen, stjórnarformaður Team Esbjerg, staðfestir í samtali við danska miðilinn MigogEsbjerg að umboðsmenn hafi haft samband við félagið og boðið því fimm til sex leikmenn úr núverandi leikmannahópi Györ. „Það er eiginlega ótrúlegt að staðan sé komin á þennan stað,“ segir Pedersen um þróun mála hjá ungverska stórliðinu. Samkvæmt umfjöllun JydskeVestkysten eru hollensku landsliðskonurnar Dione Housheer og Kelly Dulfer ásamt norsku landsliðskonunni Kari Brattset Dale meðal þeirra leikmanna sem hafa verið nefndir í tengslum við Team Esbjerg. Sú síðastnefnda er sögð vera til alvarlegrar skoðunar hjá danska félaginu fyrir næsta tímabil. Pedersen segir að fjöldi fyrirspurna frá umboðsmönnum hafi orðið til þess að stjórn Team Esbjerg kom saman til sérstaks fundar í síðustu viku til að ræða hvort félagið ætti að nýta sér stöðuna og styrkja leikmannahópinn umfram fyrri áætlanir. Hann leggur þó áherslu á að félagið ætli ekki að taka skyndiákvarðanir eða stefna fjárhag sínum í hættu þrátt fyrir að leikmenn í allra fremstu röð standi skyndilega til boða. „Við ætlum ekki að taka fljótfærnislegar ákvarðanir þótt allt í einu opnist möguleikar á að fá leikmenn sem við töldum ekki mögulegt að fá fyrir tveimur vikum,“ segir Pedersen. Györ hefur um árabil verið eitt fjárhagslega sterkasta félag evrópsks kvennahandbolta og hefur reglulega sótt stærstu stjörnur heims til félagsins. Nú er staðan hins vegar orðin sú að forráðamenn félagsins hafa sjálfir lýst því yfir að gjaldþrot sé raunhæfur möguleiki náist ekki samkomulag við leikmenn um sparnaðaraðgerðir. Edina Fata, framkvæmdastjóri Györ, hefur meðal annars sagt að það myndi hjálpa fjárhag félagsins verulega ef önnur félög tækju við einhverjum af leikmönnum þess. Team Esbjerg er ekki eina danska félagið sem hefur fengið tilboð um leikmenn frá Györ. Lasse Honoré, framkvæmdastjóri Odense Håndbold, hefur einnig staðfest að félaginu hafi verið boðinn stór hluti leikmannahóps ungverska stórliðsins. Odense fylgist sérstaklega með stöðu dönsku landsliðskonunnar Helenu Elver, sem hefur þegar samið við félagið frá sumrinu 2027. Ekki er útilokað að hún gangi til liðs við Odense fyrr ef fjárhagsvandræðin hjá Györ leiða til breytinga á leikmannahópnum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.