Sannfærandi sigur hjá Gróttu á Nesinu
Eyjólfur Garðarsson)

Grótta og Selfoss 2 mættust í dag í Grill 66 deild karla en leikið var á Seltjarnarnesi.

Fyrstu 20 mínúturnar var leikurinn stál í stál og hart barist. En síðustu 10 mínúturnar í fyrri hálfleik náðu Gróttu menn að kveikja betur á sér og keyrðu fram úr Selfyssingunum.

Hálfleikstölur voru 21-14.

Í seinni hálfleik var það sama upp á teningunum. Gróttu menn byrjaðu á fítons krafti og voru komnir 12 mörkum eftir einungis 5 mínútna leik í seinni hálfleik.

Við þetta náðu Selfyssingar að vakna til lífsins á nýjan leik og klóruðu vel í bakkann. Nær komust þeir þó ekki en að minnka muninn í 4 mörk. Lokatölur urðu 34-29 fyrir Gróttu sem eru komnir aftur á sigurbraut eftir tapið á móti ÍR í síðustu umferð.

Hjá Gróttu var Kári Kvaran með 8 mörk. Hannes Pétur Hauksson varði 16 skot og Þórður Árnason varði 3 skot.

Hjá Selfoss var Ragnar Hilmarsson markahæstur með 6 mörk. Garðar Freyr og Egill Eyvindur vörðu samtals 16 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top