Í dag mættust HK 2 og Hörður í Grill 66 deild karla en leikið var í Kórnum. Leikurinn var mjög jafn fyrsta korterið í fyrri hálfleik en þá tóku Harðverjar við sér og settu í auka gír. Voru þeir örlítið betri aðilinn það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og voru 12-14 yfir í hálfleik. Undir lok fyrri hálfleiks fékk Bragi Rúnar Axelsson í starfsliði Harðar rautt spjald fyrir mótmæli. Rétt áður en seinni hálfleikurinn átti að byrja fékk svo Pedro Nunes líka rautt spjald fyrir mótmæli. Eftir um 10 mínútna leik náðu Harðverjar voru Harðverjar komnir með mjög góð tök á leiknum og komust 5 mörkum yfir. Áfram héldu þeir og náðu þeir mest 8 marka forskoti. Úr varð að þeir sigruðu leikinn að lokum 30-32. Það er ljóst að þeir munu styrkjast til muna eftir tilkomu Ólafs Brim Stefánssonar í liðið á nýjan leik. Hjá Herði voru Jose Neto og Ólafur Brim markahæstir með 6 mörk. Hermann Alexander Hákonarson varði 14 skot. Hjá HK 2 var Elmar Franz Ólafsson markahæstur með 8 mörk. Patrekur Guðni Þorbergsson varði 13 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.