Í dag mættust Fram 2 og Valur 2 í Grill 66 deild karla en leikið var í Lambhagahöllinni. Fyrri hálfleikur var sveiflukenndur. Valsarar byrjuðu betur og komust m.a í 6-9. Framarar tóku þá við sér og náðu að komast yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins. Hálfleikstölur voru 16-15. Í seinni hálfleik voru heimamenn í Fram betri og náðu góðum tökum á leiknum. Komust þeir mest 6 mörkum yfir. Sigldu þeir sigrinum nokkuð örugglega heim. Lokatölur 36-30 fyrir Framara. Hjá Fram var Alex Unnar Hallgrímsson markahæstur með 8 mörk. Jóhann Ágústsson varði 17 skot. Hjá Val var Gabríel Jónsson Kvaran markahæstur með 9 mörk. Anton Máni varði 13 skot. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.