Karlalið Hauka tekur á móti slóvenska liðinu RK Slovenj Gradec í Kuehne+Nagel-höllinni á Ásvöllum í kvöld klukkan 18:00 í fyrri viðureign liðanna í 3. umferð Evrópubikars karla. Haukar freista þess að halda áfram góðu gengi sínu á tímabilinu og tryggja sér vænlega stöðu fyrir síðari leikinn í Slóveníu. Haukar hafa farið afar vel af stað á tímabilinu og unnið alla ellefu leiki sína í Olís-deild karla, þá er liðið komið í 8-liða úrslit Powerade-bikarsins. Í síðustu umferð mættu Haukar Handball Esch frá Lúxemborg og höfðu betur í báðum viðureignunum. Fyrri leiknum lauk með sannfærandi 41-21 sigri Hauka áður en þeir unnu síðari leikinn 31-24. Samanlagður sigur Hauka var því 72-45 og sætið í 3. umferðinni aldrei í verulegri hættu. Nú bíður hins vegar ný áskorun þegar RK Slovenj Gradec kemur í heimsókn. Leikurinn í kvöld er fyrri leikur liðanna í einvíginu þar sem samanlögð úrslit ráða því hvort liðið kemst áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Síðari leikurinn fer fram í Slóveníu laugardaginn 28. nóvember. Slóvenska liðið hafði betur gegn HC Motor frá Úkraínu í síðustu umferð, 80-71 samanlagt. Fyrri leikurinn fór 41-41 en Slovenj Gradec vann síðari viðureignina 39-30. Það er því ljóst að gestirnir hafa burði til að skora mikið og gætu reynst Haukum erfiðir viðureignar. EHF Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Livey og hefst klukkan 18:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.