Snýr Serbinn aftur til Berlínar?
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP

Þýska stórliðið Füchse Berlin er samkvæmt fregnum slóvenska handboltamiðilsins Handballia áhugasamt um að fá serbneska landsliðsmarkvörðinn Dejan Milosavljev aftur til félagsins frá pólska stórliðinu Industria Kielce. Milosavljev yfirgaf Berlínarliðið síðasta sumar en gæti nú snúið aftur eftir aðeins eitt tímabil í Póllandi.

Milosavljev var einn af lykilmönnum Füchse Berlin á undanförnum árum og naut mikilla vinsælda meðal stuðningsmanna félagsins. Hann lék með liðinu frá árinu 2019 og átti meðal annars þátt í því þegar Berlínarliðið varð þýskur meistari og vann Evrópudeildina.

Serbinn ákvað hins vegar að yfirgefa félagið síðasta sumar og ganga til liðs við Industria Kielce, þar sem hann samdi til ársins 2030. Nú eru komnar upp sögusagnir um að þýska félagið vilji fá hann aftur, ekki síst vegna þeirra vandræða sem liðið hefur glímt við í markvarðastöðunni eftir brotthvarf hans.

Handballia greindi frá því að Füchse Berlin hefði áhuga á að nýta sér fjárhagslega stöðu Kielce og kanna möguleikann á endurkomu markvarðarins. Pólska félagið hefur á undanförnum misserum unnið að því að draga úr skuldum og endurskipuleggja rekstur sinn.

Pólski miðillinn wKielcach.info hefur hins vegar kannað málið og segir að ekkert formlegt tilboð hafi borist Kielce frá Füchse Berlin. Þá myndi það kosta þýska félagið verulega fjárhæð að kaupa Milosavljev undan samningi.

Milosavljev hefur áður látið í ljós hversu vel honum leið í Berlín og hversu erfitt það var að yfirgefa félagið. Hann lék tæplega 200 leiki í þýsku úrvalsdeildinni fyrir Füchse Berlin og var lengi talinn einn af bestu markvörðum deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top