Þetta eru þeir 35 leikmenn sem koma til greina á HM í janúar
Lucija Begenisic

Freyr Aronsson úr Haukum og Gunnar Róbertsson úr Val eru yngstu leikmennirnir á 35 manna lista Íslands fyrir heimsmeistaramótið í handbolta í Þýskalandi í janúar sem Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið. Báðir eru þeir fæddir árið 2008 og eiga enn eftir að leika sinn fyrsta A-landsleik. Á listanum eru þeir ásamt Björgvini Páli Gústavssyni, sem á að baki 300 landsleiki.

Fimm markverðir koma til greina fyrir mótið. Auk Björgvins Páls og Viktors Gísla Hallgrímssonar eru Ágúst Elí Björgvinsson, Ísak Steinsson og Jón Þórarinn Þorsteinsson á listanum. Alls leika níu af þeim 35 með íslenskum félagsliðum, þar af fjórir með Val.

Stiven Tobar Valencia er á listanum þrátt fyrir að hafa verið að glíma við meiðsli undanfarna mánuði en hann gekk í raðir Vals á dögunum og lék sinn fyrsta leik í síðustu viku í Evrópudeildinni með Val.

KA á tvo leikmenn á listanum, þá Dag Gautason og Ágúst Elí Björgvinsson og þá á FH einnig tvo leikmenn á listanum, Jón Þórarin Þorsteinsson og Jón Bjarna Ólafsson.

35 manna listi Íslands

StaðaLeikmenn
Markverðir (5)Ágúst Elí Björgvinsson (KA), Björgvin Páll Gústavsson (Valur), Viktor Gísli Hallgrímsson (Barcelona), Ísak Steinsson (Drammen), Jón Þórarinn Þorsteinsson (FH)
Vinstra horn (4)Bjarki Már Elísson (PSG), Dagur Gautason (KA), Stiven Tobar Valencia (Valur), Orri Freyr Þorkelsson (Sporting)
Hægra horn (3)Birgir Már Birgisson (GC Amicitia Zürich), Sigvaldi Björn Guðjónsson (Hannover-Burgdorf), Óðinn Þór Ríkharðsson (Kadetten Schaffhausen)
Vinstri skyttur (6)Þorsteinn Leó Gunnarsson (Porto), Andri Már Rúnarsson (Erlangen), Gunnar Róbertsson (Valur), Reynir Þór Stefánsson (Melsungen), Elvar Ásgeirsson (Ribe-Esbjerg), Einar Þorsteinn Ólafsson (Hamburg)
Leikstjórnendur (6)Freyr Aronsson (Haukar), Elvar Örn Jónsson (Magdeburg), Gísli Þorgeir Kristjánsson (Magdeburg), Garðar Ingi Sindrason (Gummersbach), Janus Daði Smárason (Barcelona), Haukur Þrastarson (Rhein-Neckar Löwen)
Hægri skyttur (6)Jóhannes Berg Andrason (Tvis Holstebro), Teitur Örn Einarsson (Gummersbach), Kristján Örn Kristjánsson (Skanderborg), Viggó Kristjánsson (Erlangen), Ómar Ingi Magnússon (Magdeburg), Arnór Snær Óskarsson (Valur)
Línumenn (5)Arnar Freyr Arnarsson (Flensburg), Ýmir Örn Gíslason (Göppingen), Sveinn Jóhannsson (Chambéry), Elliði Snær Viðarsson (Gummersbach), Jón Bjarni Ólafsson (FH)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top