Það var spilað um öll Norðurlöndin í dag en í Danmörku töpuðu bæði kvennaliðin, Horsens fékk skell á heimavelli í úrvalsdeildinni á meðan Rødovre tapaði á útivelli gegn GOG. Inga Dís Jóhannsdóttir var í liði Rødovre sem tapaði með sex mörkum á útivelli gegn GOG í kvöld, lokatölur urðu 24-18. Inga Dís skoraði ekki mark að þessu sinni og Thelma Melsteð var ekki í leikmannahópi Rødovre. Katrín Tinna Jensdóttir skoraði ekki mark fyrir Horsens sem fékk stóran skell á heimavelli gegn Odense en gestirnir unnu með níu mörkum, 22-31. Í Noregi var Íslendingaslagur í karladeildinni en Sandefjord tók á móti toppliði Elverum. Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir gestina sem áttu ekki í neinum vandræðum með að vinna heimamenn, lokatölur urðu 32-43. Sigurjón Guðmundsson varði níu skot af þeim þrjátíu og níu sem hann fékk á sig eða 23% markvarsla. Larvik hélt áfram góðu gengi sínu í kvennadeildinni þegar liðið vann nauman sigur á Fredrikstad í toppslag, 33-34. Dana Björg Guðmundsdóttir var áfram fjarri góðu gamni vegna meiðsla en Larvik eru á toppi deildarinnar með tuttugu stig og hafa unnið tíu af ellefu leikjum sínum. Í sænsku kvennadeildinni komust Sävehof einar á topp deildarinnar með góðum útisigri á Höörs, 28-35 en Elín Klara Þorkelsdóttir var ekki með Sävehof að þessu sinni. Liðið er núna með tveimur stigum meira en bæði VästeråsIrsta og Skara en fyrrnefnda liðið á þó leik inni og geta jafnað Sävehof að stigum. Að lokum töpuðu Amo með sex mörkum í Stokkhólmi þegar liðið mætti Hammarby á útivelli en lokatölurnar urðu 37-31. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö mörk úr þremur skotum fyrir gestina. Úrslit dagsins: GOG 24-18 Rødovre Horsens 22-31 Odense Sandefjord 32-43 Elverum Fredrikstad 33-34 Larvik Höörs 28-35 Sävehof Hammarby 37-31 Amo

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.