Haukar lentu í kröppum dansi en innbyrtu eins marks sigur
Egill Bjarni Friðjónsson

Haukar unnu eins marks sigur á slóvenska liðinu RK Slovenj Gradec, 28–27, í fyrri leik liðanna í þriðju umferð Evrópubikars karla í handbolta í kvöld. Össur Haraldsson skoraði sigurmarkið þegar ein og hálf mínúta var eftir og Haukar taka því eins marks forskot með sér í síðari leikinn.

Haukar komust í 9–6 um miðjan fyrri hálfleik og voru enn yfir, 13–12, þegar rúmar sex mínútur voru til leikhlés. Gestirnir skoruðu þá fimm mörk í röð og leiddu 17–13 í hálfleik. Þeir bættu við fyrsta marki síðari hálfleiks og náðu aftur fimm marka forskoti þegar tæpar ellefu mínútur voru eftir, 26–21? 

Haukar skoruðu fjögur mörk í röð og Andri Fannar Elísson jafnaði í 26–26 þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir. Gestirnir náðu forystunni á ný en Sigurður Jefferson Guarino jafnaði í 27–27 áður en Össur kom Haukum yfir. Hvorugu liðinu tókst að bæta við marki á lokakaflanum.

Freyr Aronsson var markahæstur hjá Haukum með sex mörk og Össur Haraldsson skoraði fimm. Aron Rafn varði 17 skot í marki Hauka og var með 39 prósenta markvörslu. Rok Cvetko var markahæstur gestanna með tíu mörk.

Mörk Hauka
Freyr Aronsson 6, Össur Haraldsson 5, Sigurður Snær Sigurjónsson 4, Andri Fannar Elísson 4, Birkir Snær Steinsson 3, Skarphéðinn Ívar Einarsson 3, Sigurður Jefferson Guarino 3.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top