Nökkvi Snær hefur framlengt við ÍBV
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Vinstri hornamaður Eyjamanna, Nökkvi Snær Óðinsson hefur framlengt samning sinn við ÍBV. Þetta hefur Handkastið fengið staðfest úr innsta koppi Eyjamanna.

Nökkvi Snær lék 22 leiki með ÍBV í deild og úrslitakeppni á síðustu leiktíð og skoraði 25 mörk.

Óvissa ríkti um framtíð Nökkva í allt sumar en nú virðist það vera orðið klárt að Nökkvi mun leika með ÍBV í Olís-deildinni í vetur.

Nökkvi sem er uppalinn í Vestmannaeyjum er á leið inn í sitt sjötta tímabil með ÍBV í Olís-deildinni. Fyrr í sumar fengu Eyjamenn Jakob Inga Stefánsson vinstri hornamann úr Gróttu en gera má ráð fyrir að þeir keppist um vinstri hornamannastöðuna í liði ÍBV í vetur.

Nökkvi var í Hollandi um helgina þar sem ÍBV var í æfingaferð og lék tvo æfingaleiki gegn hollenskum liðum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top