Jón Brynjar Björnsson þjálfari kvennaliðs Aftureldingar hefur sagt upp störfum með liðum. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið nú rétt í þessu. Jón Brynjar tók við liði Aftureldingar fyrir rúmlega ári síðan og stýrði liðinu í Grill66-deildinni á síðustu leiktíð eftir að hafa stýrt liði Víkings í sömu deild þar áður. Afturelding endaði í 3.sæti Grill66-deildarinnar. Liðið sló út HK í undanúrslitum umspilsins en tapaði í úrslitaeinvíginu gegn Stjörnunni 3-1. ,,Það stemmir. Þetta er eitthvað sem er bara nýbúið að gerast," sagði Jón Brynjar spurður að því hvort það væri rétt að hann væri hættur með kvennalið Aftureldingar. ,,Unnusta mín hefur verið í sérnámi í kvensjúkdóma og fæðingarlækningum á Landspítalanum og fékk óvænt boð um sérnámsstöðu í Svíþjóð sem hefst nú í haust. Þetta kom okkur algjörlega á óvart þar sem við vorum ekki að reikna með að fara út fyrr en í allra fyrsta lagi eftir ár og líklega síðar. Slík staða býðst sjaldan og oftast þarf að bíða í nokkur ár eftir stöðu svo þetta er einstakt tækifæri sem er ekki hægt að hafna," sagði Jón Brynjar og bætir við að fjölskyldan flytji til Lundar í Svíþjóð í haust. ,,Í ljósi þess þarf ég því miður að láta af störfum sem þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu. Eitthvað sem er mjög leiðinlegt að þurfa að gera því ég var mjög spenntur fyrir komandi tímabili," sagði Jón Brynjar að lokum í samtali við Handkastið. Breytingar á kvennaliði Aftureldingar frá síðasta tímabili: Komnar: Farnar:
Elínborg Katla Þorbjörnsdóttir frá Selfoss
Arna Orradóttir frá Berserkir/Víkingur
Karen Hrund Logadóttir frá FH
Sigurdís Sjöfn Freysdóttir frá FH
Hulda Dagsdóttir í Fram
Stefanía Ósk Engilbertsdóttir í Fjölni
Áróra Eir Pálsdóttir flutt erlendis
Saga Sif Gísladóttir í pásu frá handbolta
Íris Kristín Smith hætt
Telma Rut Frímannsdóttir hætt

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.